Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Örn Ármann Jónsson

Örn Ármann Jónsson f. 28. júlí 1950 á Húsavík, S-Þing.


Faðir: Jón Helgi Jakobsson, vélvirkjameistari á Húsavík, S-Þing., f. 27. nóv. 1914, d. 29. apríl 1988. For.: Jakob Þorgrímsson, bóndi í Haga í Aðaldælahr., S-Þing., f. 29. mars 1877, d. 6. nóv. 1926, og Rannveig Jónasdóttir, vinnukona í Haga, f. 28. apríl 1881, d. 25. des. 1970.


Móðir: Fanney Daníelsdóttir, húsfreyja á Húsavík, S-Þing., f. 1. mars 1912. For.: Daníel Jónsson, bóndi á Sellandi í Fnjóskadal, Hálshr., S-Þing., f. 25. júní 1869, d. 1. okt. 1945, og k.h. Aðalbjörg Þórðardóttir, húsfreyja, f. 21. sept. 1867, d. 23. apríl 1935.


Nám: Stúdent frá M.A. 1971. Cand. odont. frá H.Í. 1979. Tannlækningaleyfi 19. nóv. 1979.


Störf: Tannlæknir hjá Páli Jónssyni á Selfossi júní-júlí 1979 og á Hellu á Rangárvöllum frá ágúst 1979 til sept. 1981. Hefur rekið tannlækningastofu í Borgarnesi ásamt eiginkonu sinni, Önnu Gerði Richter, frá okt. 1981.


Maki: 29. des. 1974, Anna Gerður Aðalsteinsdóttir Richter, f. 27. apríl 1953, stúdent frá M.T. 1973, cand. odont. frá H.Í. 1979, tannlæknir. For.: Aðalsteinn Magnús Stefánsson Richter, arkitekt í Reykjavík, f. 31. okt. 1912, og k.h. Elisabeth Richter, f. Pontoppidan, húsfreyja, f. 30. sept. 1920.


Börn þeirra: 1) Elísabet Richter (kjördóttir Arnar, dóttir Önnu f. hjónaband), f. 5. maí 1969, læknaritari hjá Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Sambýlismaður: Heimir Sverrisson, f. 5. ágúst 1968, iðnnemi. Þau slitu sambúð. 2) Árni Þór, f. 16. sept. 1979, nemi. 3) Helga Björk, f. 22. sept. 1982, nemi.


Skyldleiki/tengdir: Anna Gerður Richter (maki), Elfa Guðmundsdóttir (systurdóttir), Svend Richter (mágur).


 




Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar