Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Guðjón Kristleifsson

Guðjón Kristleifsson f. 7. maí 1953 í Reykjavík.


Faðir: Kristleifur Guðjón Einarsson, verkstjóri í Hafnarfirði, f. 28. febr. 1932. For.: Einar Jóhann Einarsson, verkstjóri í Reykjavík, f. 10. nóv. 1898, d. 9. sept. 1976, og k.h. Ástríður Einína Guðjónsdóttir, húsfreyja, f. 19. maí 1904, d. 16. júní 1986.


Móðir: Anna Hjálmarsdóttir, skrifstofumaður í Hafnarfirði, f. 16. des. 1929. For.: Hjálmar Eiríksson, skrifstofustjóri í Vestmannaeyjum, f. 25. jan. 1900, d. 18. ágúst 1940, og k.h. Jóna Kristinsdóttir, ljósmóðir, f. 21. des. 1895, d. 27. okt. 1975.


Nám: Stúdent frá M.H. vorið 1974. Cand. odont. frá H.Í. 1980. Tannlækningaleyfi 27. ágúst 1980. Framhaldsnám í gervitanna-, krónu- og brúargerð við University of Alabama í Birmingham í Bandaríkjunum 1985-87 og í Maxillo Facial Prosthetics 1987-88, M.Sc. þaðan 1988. Sérfræðingsleyfi í tann- og munngervalækningum 27. maí 1991.


Störf: Almenn tannlæknastörf í Reykjavík frá 1980. - Stundakennari við tannlæknadeild Háskóla Íslands frá 1980.


Félags- og trúnaðarstörf: Formaður stjórnar Félags íslenskra tannlæknanema 1977-78. Í árshátíðarnefnd TFÍ 1981-83. Ritari í stjórn TFÍ 1983-85. Í ársþings- og endurmenntunarnefnd TFÍ 1989-91, formaður 1990-91. Í samninganefnd TFÍ við tannsmiði og aðstoðarfólk frá 1993. Í stjórn Félags ungra tannlækna frá 1996.


Maki: 4. okt. 1975, Esther Þorvaldsdóttir, f. 6. des. 1955, stúdent frá M.H. 1974, B.A. í ensku og enskum bókmenntum frá H.Í. 1978, skrifstofumaður. For.: Þorvaldur Jón Matthíasson, stórkaupmaður í Reykjavík, f. 29. apríl 1934, og k.h. Svava Sumarrós Ásgeirsdóttir, húsfreyja, f. 26. júlí 1934.


Synir þeirra: 1) Bjarki, f. 18. jan. 1978, nemi við V.Í. 2) Þorvaldur, f. 7. sept. 1984. 3) Kristleifur, f. 8. júní 1988.


Skyldleiki/tengdir: Einar Kristleifsson (bróðir).




Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar