Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Björn Þ. Þórhallsson

Björn Þrastar Þórhallsson f. 3. sept. 1955 í Reykjavík.


Faðir: Þórhallur Þrastar Jónsson, byggingaverkfræðingur í Kópavogi, f. 7. febr. 1931. For.: Jón Jónsson, framkvæmdastjóri í Hafnarfirði, f. 25. sept. 1908, og k.h. Björney Jakobína Hallgrímsdóttir, kennari, f. 26. apríl 1904, d. 22. apríl 1995.


Móðir: Elín Ósk Guðjónsdóttir, húsfreyja í Kópavogi, f. 11. ágúst 1928. For.: Guðjón Hallsson, bóndi á Læknesstöðum í Sauðaneshr., N-Þing., síðar verkamaður á Þórshöfn, f. 25. des. 1899, d. 17. ágúst 1988, og k.h. Guðrún Elísabet Þorsteinsdóttir, húsfreyja, f. 6. febr. 1900, d. 5. maí 1995.


Nám: Stúdent frá M.K. 1977. Cand. odont. frá H.Í. 1986. Tannlækningaleyfi 20. nóv. 1986.


Störf: Aðstoðartannlæknir hjá Erni Á. Guðmundssyni í Reykjavík frá júní 1986 til júní 1990. Skólatannlæknir í Reykjavík frá sept. 1986 til sept. 1988. Hefur rekið eigin tannlækningastofu í Reykjavík frá júlí 1990.


Félags- og trúnaðarstörf: Í félagsheimilisnefnd TFÍ 1986-90.


Maki: 29. júní 1985, Heiðrún Hákonardóttir, f. 5. jan. 1960, stúdent frá M.H. 1980, B.Ed. frá K.H.Í. 1984, kennari við Snælandsskóla í Kópavogi. For.: Hákon Halldórsson, húsasmiður og verkstjóri á Selfossi, f. 7. mars 1937, og k.h. Unnur Zóphóníasdóttir, sjúkraliði, f. 20. mars 1940.


Börn þeirra: 1) Björney Inga, f. 22. jan. 1986. 2) Hákon Þrastar, f. 7. nóv. 1989. 3) Harpa Ósk, f. 12. apríl 1994.




Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar