Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Björn Þorvaldsson

Björn Þorvaldsson f. 14. nóv. 1939 á Bíldudal, V-Barð.


Faðir: Þorvaldur Friðfinnsson, málari og niðursuðufræðingur, verksmiðjustjóri á Bíldudal, V-Barð., f. 25. des. 1908, d. 17. febr. 1943 (fórst með m.s. Þormóði). For.: Friðfinnur Pétursson, sjómaður í Reykjavík, f. 1. mars 1866, d. 5. júlí 1914, og k.h. Jónína Þorvaldsdóttir, húsfreyja, f. 11. júní 1875, d. 4. febr. 1935.


Móðir: Helga Sigurbjörnsdóttir, húsfreyja á Bíldudal, V-Barð., síðar bankastarfsmaður og deildarstjóri hjá Íslandsbanka hf. í Reykjavík, f. 19. nóv. 1917. For.: Sigurbjörn Þorkelsson, kaupmaður í versluninni Vísi í Reykjavík, síðar forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkur, f. 25. ágúst 1885, d. 4. okt. 1981, og fyrri k.h. Gróa Bjarnadóttir, húsfreyja, f. 16. okt. 1885, d. 11. nóv. 1918. Stjúpmóðir (Helgu): Unnur Haraldsdóttir, húsfreyja í Reykjavík, f. 29. okt. 1904, d. 14. júlí 1991.


Nám: Stúdent frá M.R. 1959. Cand. odont. frá H.Í. 1966. Tannlækningaleyfi 8. mars 1967.


Störf: Aðstoðartannlæknir hjá Magnúsi R. Gíslasyni í Reykjavík frá júní 1966 til des. 1967. Hefur rekið eigin tannlækningastofu í Reykjavík frá des. 1967. - Stundakennari við tannlæknadeild Háskóla Íslands 1990-93, lektor þar 1994-95.


Félags- og trúnaðarstörf: Í fræðslunefnd TFÍ 1968-73. Í ritnefnd Árbókar TFÍ 1972-78. Umsjón Tannlæknavaktar 1973-75. Stofnfélagi Lionsklúbbsins Týs 1973, formaður 1979-80 og 1992-93. Endurskoðandi TFÍ 1981-83. Í ritnefnd Tannlæknablaðsins 1984-86.


Maki: 25. júní 1966, Kristbjörg Kjartansdóttir, f. 2. okt. 1944, aðstoðarstúlka tannlæknis og húsfreyja. For.: Kjartan Sigurjón Ólafsson, bifreiðarstjóri í Reykjavík, f. 1. ágúst 1921, d. 24. júní 1986, og k.h. Guðríður Erna Helgadóttir, húsfreyja, f. 7. des. 1926.


Börn þeirra: 1) Erna, f. 2. júní 1967, stud. oecon. í Kaupmannahöfn. Sambýlismaður: Þórarinn Bjarnason, f. 19. febr. 1967, byggingaverkfræðingur. 2) Þorvaldur, f. 20. mars 1969, húsasmiður í Reykjavík. Sambýliskona: Elína Margrét Ingólfsdóttir, f. 26. apríl 1970, lögfræðingur. 3) Helga, f. 21. febr. 1976, stúdent frá M.R.


Skyldleiki/tengdir: Olaf Nielsen (tvímenningur).




Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar