Andri Krishna Menonsson f. 23. maí 1969 í Lundún um í Englandi.
Faðir: Gopal Krishna Menon, blaðamaður og rithöfundur í Lundúnum, f. 27. nóv. 1927.
Móðir: Elínborg Lárusdóttir, félagsráðgjafi á Seltjarnarnesi, f. 19. mars 1942. For.: Lárus Ingimarsson, stórkaupmaður í Reykjavík, f. 28. júlí 1919, d. 22. sept. 1985, og fyrri k.h. (skildu) Ásdís Vídalín Kristjánsdóttir, húsfreyja, f. 3. des. 1918, d. 28. ágúst 1992.
Stjúpfaðir: Jón Valur Þorlákur Jensson, guðfræðingur og framkvæmdastjóri Ættfræðiþjónustunnar í Reykjavík, f. 31. ágúst 1949. For.: Jens Hinriksson, vélstjóri og vélfræðingur í Reykjavík, f. 21. okt. 1922, d. 2. ágúst 2004, og k.h. Kristín Jóna Jónsdóttir, húsfreyja, f. 30. sept. 1924.
Nám: Stúdent frá M.H. 1989. B.A. í sálarfræði frá Háskóla Íslands 1995. Cand. odont. frá
Björgvinjarháskóla í Noregi 2001. — Tannlækningaleyfi 4. júlí 2006.
Störf: Tannlæknir í Kirkenes í Noregi frá 1. sept. til 31. des. 2001, í Batsfjord frá 1. jan. 2002 til 1. júlí 2003, í Osló frá 1. ágúst 2003 til 7. júní 2006 og í Kópavogi frá 15. júní 2006 til 27. apríl 2007. Félags- og trúnaðarstörf: Varatrúnaðarmaður tannlækna í Oslo Nord frá sept. 2004 til júní 2006.
Skyldleiki/tengdir: Guðmundur R. Hannesson (móðir tvím. við stjúpföður A.K.M.).
|