Bragi Ásgeirsson
Bragi Ásgeirsson f. 20. mars 1940 í Borgarnesi. Faðir: Ásgeir Þorsteinn Ólafsson, héraðsdýralæknir í Borgarnesi, síðar í Reykjavík, f. 28. okt. 1902, d. 15. júlí 1995. For.: Ólafur Vilborgarson Ófeigsson, kaupmaður í Keflavík, f. 24. maí 1869, d. 10. mars 1931, og k.h. Þórdís Einarsdóttir, húsfreyja, f. 13. des. 1875, d. 5. des. 1967. Móðir: Guðrún Svava Árnadóttir, húsfreyja í Borgarnesi og síðar í Reykjavík, f. 23. des. 1908, d. 16. júlí 1993. For.: Árni Eiríksson, kaupmaður og leikari í Reykjavík, f. 26. jan. 1870, d. 10. des. 1917, og seinni k.h. Vilborg Runólfsdóttir, húsfreyja, f. 23. ágúst 1884, d. 28. sept. 1965. Nám: Stúdent frá V.Í. 1961. Cand. odont. frá H.Í. 1969. Tannlækningaleyfi 20. febr. 1970. Störf: Aðstoðartannlæknir hjá Gunnari Skaptasyni í Reykjavík 1969-70 og skólatannlæknir í Reykjavík á sama tíma. Tannlæknir í Borgarnesi 1970-81. Hefur rekið eigin tannlækningastofu í Reykjavík frá 1981 og einnig í Keflavík frá 1987. Félags- og trúnaðarstörf: Ritstjóri Harðjaxls 1965-66. Endurskoðandi TFÍ 1983-85. Í stjórn Hestamannafélagsins Fáks frá 1993 og formaður frá 1996. Maki: 15. des. 1962, Edda Hinriksdóttir, f. 2. mars 1944, hárgreiðslumeistari. For.: Hinrik Ragnarsson, vörubifreiðarstjóri í Reykjavík, f. 15. nóv. 1920, og k.h. Jóna Margrét Árnadóttir, húsfreyja, f. 1. mars 1913, d. 6. jan. 1990. Börn þeirra: 1) Jóna Dís, f. 4. apríl 1963, uppeldisfræðingur í Mosfellsbæ. Sambýlismaður: Helgi Sigurðsson, f. 20. júlí 1952, dýralæknir. 2) Hinrik, f. 10. sept. 1968, tamningamaður í Reykjavík. Sambýliskona: Hulda Gústafsdóttir, f. 5. mars 1966, viðskiptafræðingur. 3) Guðrún Edda, f. 27. ágúst 1970, snyrtifræðingur í Kópavogi. Sambýlismaður: Sveinn Ragnarsson, f. 5. febr. 1969, viðskiptafræðingur. |
Mynd








