Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Börkur Thoroddsen

Börkur Birgisson Thoroddsen f. 30. jan. 1942 í Reykjavík.


Faðir: Birgir Ólafsson Thoroddsen, skipstjóri hjá Hf. Eimskipafélagi Íslands í Reykjavík, f. 10. okt. 1911, d. 2. jan. 1969. For.: Ólafur Einarsson Thoroddsen, skipstjóri og útvegsbóndi í Vatnsdal í Rauðasandshr., V-Barð., f. 4. jan. 1873, d. 17. nóv. 1964, og k.h. Ólína Andrésdóttir Thoroddsen, húsfreyja, f. 23. sept. 1883, d. 4. sept. 1959.


Móðir: Hrefna Gísladóttir Thoroddsen, húsfreyja í Reykjavík, f. 4. júní 1918. For.: Gísli Jónsson, verslunarstjóri á Seyðisfirði, f. 15. sept. 1883, d. 29. júní 1964, og k.h. Margrét Arnórsdóttir, húsfreyja, f. 9. júlí 1887, d. 19. ágúst 1920. Stjúpmóðir (Hrefnu): Guðrún Guðmundsdóttir, húsfreyja á Seyðisfirði, f. 6. nóv. 1898, d. 26. okt. 1980.


Nám: Stúdent frá M.R. 1963. Nám við tannlæknadeild H.Í. 1963-66 og við Tannlæknaskólann í Kaupmannahöfn (síðari hluta nám) 1966-69, cand. odont. þaðan 1969. Tannlækningaleyfi 17. júlí 1969. Framhaldsnám við Institut for Parodontologi við Tannlæknaskólann í Kaupmannahöfn 1972-73.


Störf: Aðstoðartannlæknir og skólatannlæknir í Reykjavík frá júlí 1969 til júní 1972 og frá sept. 1973 til des. 1974. Klínískur kennari við Institut for Parodontologi í Kaupmannahöfn 1972-73. Sjálfstætt starfandi tannlæknir í Reykjavík frá jan. 1975. - Prófdómari í tannvegsfræði við tannlæknadeild Háskóla Íslands 1975, 1976 og 1985, prófdómari í bitfræði þar 1987 og í tannsjúkdómafræði og tannfyllingu frá 1987.


Félags- og trúnaðarstörf: Í félagsheimilisnefnd TFÍ 1970-72. Gjaldkeri í stjórn TFÍ 1974-76. Í stjórn Dentalíu hf. 1974-94. Í ritnefnd Árbókar TFÍ 1975-77. Í kúrsusnefnd TFÍ 1977-81. Í fræðslunefnd TFÍ 1978-83. Í námskeiðsnefnd fyrir aðstoðarfólk 1978-81. Í ársþings- og endurmenntunarnefnd TFÍ 1983-87 og 1990-95. Formaður endurmenntunarnefndar TFÍ 1984-87. Fulltrúi í tannverndarráði 1984-88. Varaformaður stjórnar TFÍ 1987-88 og formaður 1988-90. Í samstarfsnefnd TFÍ og T.R. 1990-92. Formaður gjaldskrárnefndar frá 1991. Í gerðardómi frá 1992. Í samninganefnd TFÍ og T.R. frá 1994. Ritstjóri Handbókar TFÍ 1995-96 ásamt Svend Richter. Forseti Rótarýklúbbs Seltjarnarness 1997-98. Félagi í American Dental Association, Dansk Tandlægeforening, Nordisk Odontologisk Forening og Scandinavian Society of Periodontology.


Ritstörf: Notkun verkfærabakka, Árbók TFÍ, 1971, 27-30; Hljóð og mynd sem kennslutæki, sst., 14-19; Kaup og sala á tannlæknapraxis, Handbók TFÍ 1996; Nýmyndun tannfestu. Lýsing meðferðar tveggja sjúkdómstilfella, Tannlæknablaðið, 13:1995, 7-11.


Viðurkenning: Hlaut styrk Scandinavian Society of Periodontology og GUIDOR AB til að sækja námskeið í nýfestuaðgerðum (Guided Tissue Regeneration) við Odontologiska Institutionen í Jönköping í okt. 1996.


Maki: 23. júlí 1966, Adda Gerður Árnadóttir, f. 1. des. 1942, stúdent frá M.H. 1978, handavinnukennari og nuddari. For.: Árni Guðmundsson, bifreiðarstjóri í Reykjavík, f. 26. mars 1900, d. 18. okt. 1987, og k.h. Valgerður Bjarnadóttir, húsfreyja, f. 4. júlí 1899, d. 13. sept. 1973.


Börn þeirra: 1) Birgir, f. 10. ágúst 1967, M.Sc., rafmagnsverkfræðingur í San Jose í Kaliforníu. Maki: Helga Jónsdóttir, f. 18. des. 1967, háskólanemi. 2) Valgerður, f. 19. júní 1971, B.Sc., líffræðingur í Boston í Massachusetts. Maki: Krishna Jain, f. 10. mars 1964, véla- og flugverkfræðingur. 3) Hrefna, f. 11. nóv. 1977, háskólanemi. 4) Harpa, f. 5. júlí 1979, nemi við M.R.


Skyldleiki/tengdir: Guðmundur Árnason (mágur), Ólafur Stephensen (tvím. við móður), Sæbjörn Guðmundsson (B.T. maki föðursystur S.G.).




Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar