Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Ómar Konráðsson

Ómar Konráðsson f. 13. júní 1935 í Reykjavík.
Faðir: Konráð Gíslason, skrifstofumaður og síðar kaupmaður í Reykjavík, f. 26. des. 1904, d. 26. júlí 1983. For.: Gísli Jónsson, verslunarstjóri í Vík í Mýrdal og Borgarnesi, síðar kaupmaður og verslunarmaður í Reykjavík, f. 1. jan. 1871, d. 10. júní 1938, og k.h. Ásta Guðmundsdóttir, húsfreyja, f. 13. nóv. 1874, d. 7. júní 1962.
Móðir: Hulda Bjarnadóttir, húsfreyja í Reykjavík, f. 27. júní 1911, d. 7. apríl 1992. (Hulda var fyrri k. Konráðs. Þau skildu.) For.: Bjarni Ívarsson, bókbindari í Reykjavík, f. 14. ágúst 1885, d. 30. ágúst 1965, og seinni k.h. (skildu) Ragnheiður Magnúsdóttir Blöndal, húsfreyja, f. 17. okt. 1886, d. 22. apríl 1965.
Nám: Stúdent frá M.R. 1958. Nám í læknisfræði við H.Í. um skeið og síðan í tannlæknisfræði, cand. odont. þaðan 1964. Tannlækningaleyfi 2. febr. 1965. Framhaldsnám í krónu- og brúargerð við Kaupmannahafnarháskóla 1970.
Störf: Aðstoðartannlæknir hjá Hauki Clausen í Reykjavík jan-des. 1964. Rak tannlækningastofu í Reykjavík frá jan. 1965 til des. 1969 og 1971-75. Aðstoðartannlæknir hjá Ole Grønland í Espergærde í Danmörku árið 1970. Rak tannlækningastofu og tannsmíðaverkstæði á Sauðárkróki frá 1975 og einnig tannlækningastofu í Garðabæ frá sama ári til nóv. 1982, er hann lét af störfum vegna afleiðinga af slysi.
Félags- og trúnaðarstörf: Varamaður í stjórn Tannlæknafélags Norðurlands frá stofnun þess 17. mars 1973 til 1976.
Maki: 1. ágúst 1959, Edda Eyfeld, f. 24. apríl 1941, húsfreyja. Þau skildu 23. febr. 1988, lögsk. 16. nóv. 1989. For.: Ferdinand Ríkarð Eyjólfsson Eyfeld, vélstjóri og framkvæmdastjóri á Akureyri, síðast í Reykjavík, f. 30. okt. 1898, d. 15. des. 1946, og seinni k.h. Margrét Emilía Þórðardóttir, húsfreyja, f. 7. okt. 1908, d. 24. júlí 1972.
Börn þeirra: 1) Ásta, f. 12. sept. 1960, húsfreyja og nemi í kerfisfræði í Húskvarna í Svíþjóð. Maki: Ómar Þröstur Emilsson Richter, f. 17. febr. 1958, tannsmiður. 2) Ferdinand Ríkhard Eyfeld, f. 31. okt. 1961, tannsmiður í Reykjavík. Maki: Guðrún Jónsdóttir, f. 5. febr. 1962, verslunarmaður. 3) Hrund, f. 10. nóv. 1972, nemi í Osló í Noregi.
Skyldleiki/tengdir: Sigurður Lúðvígsson (þremenningur).



Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar