Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Egill Jónsson


Egill Jónsson f. 30. maí 1949 á Akureyri.



Faðir: Jón Eysteinn Egilsson, forstjóri á Akureyri, f. 16. sept. 1917, d. 24. sept. 1996. For.: Egill Tómasson, bóndi á Auðnum og í Bakkaseli í Öxnadalshr., Eyjaf., síðar verkamaður á Akureyri, f. 10. des. 1890, d. 23. nóv. 1960, og k.h. Sigríður Helga Jónsdóttir, húsfreyja, f. 12. okt. 1895, d. 23. febr. 1960.



Móðir: Margrét Gísladóttir, húsfreyja og matráðskona á Akureyri, f. 6. ágúst 1924. For.: Gísli Hjálmarsson Kristjánsson, útgerðarmaður á Norðfirði, síðar á Akureyri og í Hafnarfirði, f. 12. des. 1893, d. 6. júlí 1989, og k.h. Fanny Kristín Ingvarsdóttir, húsfreyja, f. 17. des. 1904, d. 10. ágúst 1997.



Nám: Stúdent frá M.A. 1969. Cand. odont. frá H.Í. 1976. Tannlækningaleyfi 27. sept. 1976. Framhaldsnám í barnatannlækningum (pedodonti) við Institutionen för Pedodonti, Lunds Universitet, 1980-82, við Tandlægeskolen í Kaupmannahöfn á vorönn 1994 og við Tannlæknaháskólann í Malmö í Svíþjóð á vorönn 1996.



Störf: Aðstoðartannlæknir hjá Jóhanni G. Benediktssyni á Akureyri frá júní 1976 til des. 1977. Hefur rekið eigin tannlækningastofu á Akureyri frá jan. 1978 til júlí 1980 og á ný frá mars 1982. - Aðstoðarkennari við Tannlæknaháskólann í Malmö frá ágúst 1980 til febr. 1982. Framkvæmdastjóri FIDES hf. frá okt. 1990 til mars 1991.



Félags- og trúnaðarstörf: Ritstjóri Harðjaxls 1972-73. Ritari í stjórn Tannlæknafélags Norðurlands 1978-80, formaður 1982-84, gjaldkeri 1984-86 og meðstjórnandi 1986-87. Í orða- og fræðslunefnd TFÍ 1984-85. Formaður stjórnar FIDES hf. og Henry Schein Fides hf. frá okt. 1990 til júní 1996.



Ritstörf: Úrkölkun - endurkölkun, Tannlæknablaðið 1:1985, 23-27; Áhættuþættir barna á Íslandi gagnvart tannátu, sst., 1:1994, 21-25; Röng uppkoma jaxla, sst., 1:1995, 33-35.



Maki: 8. ágúst 1970, Herdís María Júlíusdóttir, f. 6. sept. 1949, hjúkrunarpróf frá Hj.Í. 1971, hjúkrunarfræðingur við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. For.: Júlíus Baldvin Jónsson, bankafulltrúi á Akureyri, f. 31. maí 1915, og k.h. Sigríður Gísladóttir, húsfreyja, f. 17. júlí 1916.



Börn þeirra: 1) María, f. 18. apríl 1970, stúdent frá M.A., hjúkrunarfræðingur frá H.A. Sambýlismaður: Sigurður Bjarnason, f. 1. jan. 1970, vélstjóri. 2) Júlía, f. 21. apríl 1977, nemi við M.A. 3) Jón Gísli, f. 21. des. 1986.





Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar