Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Rafn Jónsson

Rafn Jónsson f. 9. okt. 1911 í Reykjavík, d. 17. mars 1994 í Reykjavík.
Faðir: Jón Guðmundsson, bóndi á Reykjum í Lundarreykjadalshr., Borg., bóndi og landpóstur á Fúlutjörn og Laugalandi við Reykjavík, ráðsmaður á Vífilsstaðahæli og síðar verslunarmaður í Reykjavík og Vestmannaeyjum, f. 16. ágúst 1859, d. 5. apríl 1927. For.: Guðmundur Ásmundsson, bóndi í Ausu í Andakílshr., á Englandi og Iðunnarstöðum í Lundarreykjadalshr., Borg., f. 1816, d. 13. júlí 1864, og seinni k.h. Guðrún Jónsdóttir, húsfreyja, f. 4. okt. 1823, d. 22. febr. 1884.
Móðir: Guðbjörg Narfadóttir, húsfreyja í Reykjavík og á Vífilsstöðum í Garðahr., Gullbr., f. 22. maí 1868, d. 29. ágúst 1955. (Guðbjörg var seinni k. Jóns.) For.: Narfi Þorsteinsson, bóndi og hreppstjóri í Stíflisdal í Þingvallasveit, Árn., og á Klafastöðum í Skilmannahr., Borg., f. 30. júní 1828, d. 13. maí 1889, og k.h. Þjóðbjörg Þórðardóttir, húsfreyja, síðast í Reykjavík, f. 21. nóv. 1829, d. 12. nóv. 1905.
Rafn ólst upp frá 6 ára aldri hjá Vigfúsi Péturssyni, bónda og hreppstjóra á Gullberastöðum í Lundarreykjadalshr., Borg., f. 17. mars 1861, d. 16. júní 1941, og k.h. Sigríði Narfadóttur (móðursystur Rafns), húsfreyju og ljósmóður, f. 17. maí 1860, d. 17. okt. 1938, og hjá hálfbróður sínum, Guðmundi Jónssyni, bónda og hreppstjóra á Ytri-Skeljabrekku og Hvítárbakka í Andakílshr., Borg., f. 23. apríl 1890, d. 25. maí 1957, og k.h. Ragnheiði Magnúsdóttur, húsfreyju, f. 17. ágúst 1897, d. 6. okt. 1981.
Nám: Í Hvítárbakkaskóla 1926-27. Stúdent frá M.A. 1932. Nám við læknadeild H.Í. 1932-33, cand. phil. þaðan vorið 1933. Cand. odont. frá Tannlæknaskólanum í Kaupmannahöfn 4. júlí 1936. Tannlækningaleyfi í Danmörku 22. nóv. 1940 og á Íslandi 13. sept. 1945.
Störf: Skólatannlæknir við Austurbæjarskólann í Reykjavík 1936-37. Aðstoðartannlæknir hjá Halli Hallssyni í Reykjavík 1937-38. Aðstoðartannlæknir í Kaupmannahöfn 1938-45. Rak eigin tannlækningastofu í Reykjavík frá sept. 1945 til 16. mars 1990, er hann lét af störfum vegna veikinda.
Félags- og trúnaðarstörf: Fulltrúi TFÍ á 27. þingi Skandinavíska tannlæknafélagsins í júlí 1939 í Stokkhólmi og á 75 ára afmælissamkomu stjórnar sama félags 23. ágúst 1941 í Kaupmannahöfn. Í nefnd "sem kæmi betra skipulagi á greiðslur" 1945-46. Endurskoðandi TFÍ 1946-50. Í samninganefnd við Tannsmiðafélagið 1949-55. Gjaldkeri í stjórn TFÍ 1951-54, meðstjórnandi 1954-57 og formaður 1957-62. Í stjórn Skandinavíska tannlæknafélagsins 1952-57 og 1969-72. Í gerðardómi TFÍ 1957-59, 1967-69 og 1978-81. Í fræðslunefnd TFÍ 1959-62. Í bílaúthlutunarnefnd TFÍ 1959-60. Fulltrúi TFÍ í Bandalagi háskólamenntaðra manna 1959-62. Aðalhvatamaður að stofnun Lífeyrissjóðs tannlækna 28. júlí 1959, ritari í stjórn hans 1964-76 og formaður 1976-78. Í sérfræðinganefnd TFÍ 1961-62. Í fornminjanefnd TFÍ 1965-90. Í kúrsusnefnd TFÍ 1966-68. Í 50 ára afmælisnefnd TFÍ 1977. Í ritnefnd Tannlæknatals 1982-86. Rafn (ásamt Gunnari Skaptasyni og Geir Tómassyni) lagði grundvöllinn að Tannlæknafélagi Íslands, eins og það starfar nú.
Ritstörf: Tannlæknafélag Íslands. Yfirlit yfir stofnun og starfsemi félagsins fyrstu 30 árin, 1927-1957, Tannlæknatal 1854-1984, Rvík 1984, IX-XIII.
Viðurkenning: Heiðursfélagi Tannlæknafélags Íslands 1971.
Maki: 31. des. 1937, Hulda Vilhjálmsdóttir Olgeirsson, f. 26. júní 1917, d. 28. des. 1985, próf frá V.Í. 1935, húsfreyja og verslunarmaður. For.: Kjartan Ísfjörð Jensen, beykir á Eskifirði, í Kaupmannahöfn og á Akureyri, f. 6. febr. 1880, d. 21. des. 1926, og Ásta Sigurbjörg Símonardóttir, húsfreyja á Seyðisfirði og í Reykjavík, f. 6. ágúst 1886, d. 14. maí 1945. Kjörfor. (Huldu): Vilhjálmur Olgeirsson, verslunarmaður á Ísafirði og kaupmaður í Reykjavík, f. 27. apríl 1857, d. 4. nóv. 1925, og seinni k.h. Jóhanna Gísladóttir Olgeirsson, kaupkona og húsfreyja, f. 18. ágúst 1874, d. 17. apríl 1962.
Börn þeirra: 1) Sigrún, f. 19. júlí 1938, deildarmeinatæknir í Reykjavík. Maki: Kristinn Einarsson, f. 10. des. 1938, d. 3. sept. 1992, hæstaréttarlögmaður. Þau skildu. 2) Sveinbjörn, f. 22. mars 1944, fil. dr., prófessor við Háskóla Íslands í Reykjavík. Maki: Ingibjörg Helga Guðmundsdóttir, f. 23. okt. 1947, húsfreyja. 3) Vilhjálmur, f. 29. ágúst 1945, med. dr., yfirlæknir hjá Vinnueftirliti ríkisins í Reykjavík. Maki I: Anna Ragnhildur Ingólfsdóttir, f. 18. sept. 1946, tónlistarmaður. Þau skildu. Maki II: Álfheiður Steinþórsdóttir, f. 13. jan. 1946, sálfræðingur. 4) Jón Stefán, f. 20. des. 1946, d. 27. jan. 1985, tannlæknir í Reykjavík. Maki: Sveinborg María Gísladóttir, f. 7. júní 1945, hjúkrunarfræðingur.
Skyldleiki/tengdir: Einar Þór Rafnsson (R.J. hálfbróðir föðurföður E.Þ.R.), Jón Stefán Rafnsson (sonur), Úlfar Helgason (bróðursonur).



Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar