Egill Kolbeinsson
Egill Kolbeinsson f. 16. maí 1951 í Reykjavík. Faðir: Kristinn Kolbeinn Kristófersson, fv. yfirlæknir við röntgendeild Landspítalans og prófessor í geislagreiningu við læknadeild Háskóla Íslands, búsettur í Garðabæ, f. 17. febr. 1917. For.: Kristófer Egilsson, járnsmiður í Reykjavík, f. 21. ágúst 1873, d. 30. nóv. 1947, og k.h. Þórunn Friðriksdóttir, húsfreyja, f. 5. júlí 1884, d. 26. febr. 1935. Móðir: Kristín Álfheiður Óladóttir, húsfreyja í Garðabæ, f. 11. apríl 1919. For.: Óli Ketilsson, prestur í Ögurþingum, búsettur í Súðavík, á Dvergasteini í Álftafirði og síðar á Hvítanesi í Skötufirði, Ögurhr., N-Ís., f. 26. sept. 1896, d. 25. mars 1954, og k.h. María Tómasdóttir, húsfreyja, f. 4. nóv. 1896, d. 24. maí 1978. Nám: Stúdent frá M.R. 1972. Cand. odont. frá H.Í. 1981. Tannlækningaleyfi 7. júní 1982. Störf: Tannlæknir á Ólafsfirði frá júní 1981 til 1. júní 1984. Hefur rekið eigin tannlækningastofu í Reykjavík frá 1. júní 1984. Félags- og trúnaðarstörf: Í félagsheimilisnefnd TFÍ 1984-86. Í stjórn Skíðadeildar KR 1985-92 og stjórn Skíðaráðs Reykjavíkur (SKRR) 1991-92. Formaður stjórnar Tannsa hf. 1989-91. Í stjórn Kjölbátasambands Íslands 1993. Í stjórn Siglingaklúbbsins Þyts í Hafnarfirði frá okt. 1994, formaður frá okt. 1995. Maki: 6. júlí 1974, Guðbjörg Steinþóra Hólmgeirsdóttir, f. 13. ágúst 1951, hjúkrunarpróf frá Hj.Í. 1973, hjúkrunarfræðingur. For.: Hólmgeir Júlíusson, bifreiðarstjóri í Hafnarfirði, f. 15. nóv. 1926, og k.h. Kristjana Björg Þorsteinsdóttir, húsfreyja, f. 28. mars 1932. Börn þeirra: 1) Hjalti, f. 2. sept. 1973, stúdent frá F.G., nemi í stjórnmálafræði við H.Í. 2) Kristófer, f. 7. júní 1982, nemi. 3) Álfheiður Björg, f. 5. maí 1983, nemi.
|
Mynd








