Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Ríkharður Pálsson

Páll Ríkarður Pálsson f. 12. júlí 1932 í Sauðanesi í Torfalækjarhr., A-Hún.
Faðir: Páll Jónsson, búfræðingur, bóndi í Sauðanesi í Torfalækjarhr., A-Hún., f. 15. mars 1875, d. 24. okt. 1932. For.: Jón Jónsson, bóndi í Sauðanesi, f. 13. des. 1834, d. 15. apríl 1884, og k.h. Helga Gísladóttir, húsfreyja, f. 28. ágúst 1842, d. 20. ágúst 1918.
Móðir: Sesselja Þórðardóttir, húsfreyja í Sauðanesi í Torfalækjarhr., A-Hún., f. 29. ágúst 1888, d. 10. sept. 1942. For.: Þórður Kristinn Jónsson, bóndi á Steindyrum í Svarfaðardalshr., Eyjaf., f. 15. júní 1858, d. 7. okt. 1941, og k.h. Guðrún Lovísa Björnsdóttir, húsfreyja, f. 1. nóv. 1862, d. 9. júní 1906.
Nám: Stúdent frá M.R. 1952. Nám í ensku við Concordia College í Moorehead í Minnesota í Bandaríkjunum 1952-53. Cand. odont. frá Georg-August-Universität í Göttingen í Þýskalandi 1962. Tannlækningaleyfi 22. mars 1963. Námsdvöl á vegum Evrópuráðsins við Norddeutsche Kieferklinik í Hamborg sumarið 1968.
Starf: Rak eigin tannlækningastofu í Reykjavík frá maí 1963 til júní 1997.
Félags- og trúnaðarstörf: Endurskoðandi TFÍ 1963. Í fræðslunefnd TFÍ 1964-65. Í kúrsusnefnd TFÍ 1966-68 og bóka- og áhaldavörður TFÍ 1966-68. Í námskeiðsnefnd fyrir klínikdömur 1967-69. Í stjórn Tennis- og badmintonfélags Reykjavíkur 1969-79, formaður 1978-79. Í skemmtinefnd TFÍ 1972-73.
Íþróttir: Keppti í landsliði öldunga í golfi á Evrópumeistaramóti í Frakklandi 1993.
Ritstörf: Minningar frá stríðsárunum, Lesbók Morgunblaðsins, nóv. 1994.
Viðurkenningar: Gullmerki Tennis- og badmintonfélags Reykjavíkur 1986 og heiðursfélagi félagsins 1996. Viðurkenning frá ferðamálaráði Lech í Austurríki fyrir að stuðla að skíðaferðum þangað.
Maki: 28. maí 1955, Selma Hannesdóttir, f. 21. júní 1933, húsfreyja. For.: Hannes Sigurður Einarsson, stýrimaður í Reykjavík, f. 19. sept. 1896, d. 18. okt. 1940, og k.h. Guðbjörg Brynjólfsdóttir (frá Ytri-Ey á Skagaströnd), húsfreyja í Reykjavík, f. 12. nóv. 1898, d. 3. júlí 1982.
Synir þeirra: 1) Hannes, f. 2. mars 1955, tannlæknir í Reykjavík. Maki: Hella Villig, f. 8. júlí 1951, kennari. 2) Smári, f. 1. apríl 1964, viðskiptafræðingur og vátryggingamiðlari í Reykjavík. Maki: Hrafnhildur Halldórsdóttir, f. 29. mars 1964, fjölmiðlafræðingur.
Skyldleiki/tengdir: Árni Jónsson (R.P. tvím. við föður Á.J.), Hannes Ríkarðsson (sonur), Sturla Þórðarson (bróðursonur).



Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar