Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Egill R. Guðjohnsen

Egill Ragnars Stefánsson Guðjohnsen f. 9. júní 1955 í Reykjavík.


Faðir: Stefán Jakobsson Guðjohnsen, viðskiptafræðingur, framkvæmdastjóri Málningar hf., búsettur í Mosfellsbæ, f. 27. maí 1931. For.: Jakob Stefánsson Guðjohnsen, raforkuverkfræðingur, rafmagnsstjóri í Reykjavík, f. 23. jan. 1899, d. 11. okt. 1968, og k.h. Elly Hedwig Guðjohnsen, f. Norwottrich, húsfreyja, f. 2. mars 1903, d. 12. nóv. 1962.


Móðir: Guðrún Egilsdóttir Guðjohnsen, f. Ragnars, snyrtifræðingur í Mosfellsbæ, f. 31. jan. 1934. For.: Egill Ragnarsson Ragnars, vélfræðingur og útgerðarmaður á Siglufirði og Þórshöfn, f. 11. maí 1902, d. 27. mars 1977, og k.h. Sigríður Elísabet Stefánsdóttir Ragnars, húsfreyja, síðar verslunarstjóri í Reykjavík, f. 23. nóv. 1908, d. 10. júlí 1995.


Nám: Stúdent frá M.R. 1975. Cand. odont. frá H.Í. 1984. Tannlækningaleyfi 7. ágúst 1984. Framhaldsnám í protetik við University of Minnesota, School of Dentistry, í Minneapolis 1985-87, M.Sc. í tann- og munngervalækningum þaðan 1987.


Störf: Tannlæknir í Ólafsvík 1984-85. Kennslustörf við University of Minnesota, School of Dentistry, 1985-87. Aðstoðartannlæknir í Keflavík 1987-90. Sjálfstætt starfandi tannlæknir í Reykjavík frá sept. 1990. - Stundakennari í protetik við tannlæknadeild Háskóla Íslands frá 1987.


Sambýliskona: 1976, Sigurlaug Ragnheiður Guðmundsdóttir, f. 10. maí 1945, húsfreyja. Þau slitu sambúð 1982. For.: Guðmundur Halldórsson, húsgagnasmíðameistari í Reykjavík, f. 6. jan. 1908, og k.h. Þórey Þorkelsdóttir, húsfreyja, f. 15. jan. 1911, d. 8. sept. 1968.


Dætur þeirra: 1) Guðrún, f. 26. júlí 1977, framreiðslumaður. 2) Sigrún, f. 10. febr. 1979, framreiðslumaður.


Maki: 14. nóv. 1987, Kolbrún Hauksdóttir, f. 13. ágúst 1966, húsfreyja. For.: Haukur Sighvatsson, prentari í Reykjavík, f. 13. nóv. 1940, og k.h. Valgerður Sigurðardóttir, meinatæknir, f. 4. des. 1937.


Synir þeirra: 1) Andri Ragnars, f. 2. sept. 1989. 2) Haukur Ragnars, f. 27. júní 1991. 3) Egill Ragnars, f. 27. jan. 1993.


 




Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar