Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Sigurður Jónsson

Sigurður Jónsson f. 16. maí 1932 í Reykjavík.
Faðir: Jón Sigurðsson, járnsmíðameistari í Reykjavík, f. 15. mars 1908, d. 15. des. 1980. For.: Sigurður Eyjólfsson, sjómaður og verkamaður í Reykjavík, f. 22. júní 1876, d. 15. mars 1921, og k.h. Ingibjörg Sólveig Jónsdóttir, húsfreyja, f. 27. júlí 1885, d. 8. maí 1966.
Móðir: Guðný Guðjónsdóttir, húsfreyja í Reykjavík, f. 18. maí 1912. For.: Guðjón Ívarsson, verkamaður í Reykjavík, f. 24. maí 1876, d. 3. nóv. 1961, og k.h. Guðbjörg Eymundsdóttir, húsfreyja, f. 27. okt. 1880, d. 24. des. 1972.
Nám: Stúdent frá M.R. 1953. Nám í tannlækningum við Georg-August-Universität í Göttingen í Þýskalandi 1954-56, fyrrihlutapróf þaðan 1956. Cand. odont. frá H.Í. í jan. 1960. Tannlækningaleyfi 21. mars 1962.
Störf: Aðstoðartannlæknir hjá Jóhanni Finnssyni í Reykjavík frá 1. febr. 1960 til 1. maí 1964. Hefur rekið eigin tannlækningastofu í Reykjavík frá maí 1964.
Félags- og trúnaðarstörf: Í skemmtinefnd TFÍ 1963-66. Endurskoðandi TFÍ 1965-67. Í fræðslunefnd TFÍ 1965-69. Í stjórn styrktarsjóðs TFÍ 1968-77. Í árshátíðarnefnd TFÍ 1984-85.
Maki: 16. maí 1956, Kristín Kristinsdóttir Nilsen Beck, f. 10. júní 1933, húsfreyja. For.: Kristinn Kristinsson Beck, bifreiðarstjóri á Reyðarfirði, S-Múl., f. 16. maí 1903, d. 3. des. 1996, og k.h. Inga Pálína Nilsdóttir Beck, f. Nilsen, símstöðvarstjóri, f. 31. jan. 1898, d. 22. júní 1987.
Börn þeirra: 1) Inga, f. 25. maí 1956, kennari í Reykjavík. Maki: Þórður Þórðarson, f. 26. júní 1955, framkvæmdastjóri. 2) Jón Örn, f. 31. des. 1964, símsmíðameistari, starfsmaður hjá Pósti og síma hf. í Reykjavík. Maki: Ragnheiður Gunnarsdóttir, f. 26. apríl 1966, símsmiður.



Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar