Einar Kristleifsson
Einar Kristleifsson f. 25. sept. 1959 í Reykjavík. Faðir: Kristleifur Guðjón Einarsson, verkstjóri í Hafnarfirði, f. 28. febr. 1932. For.: Einar Jóhann Einarsson, verkstjóri í Reykjavík, f. 10. nóv. 1898, d. 9. sept. 1976, og k.h. Ástríður Einína Guðjónsdóttir, húsfreyja, f. 18. maí 1904, d. 16. júní 1986. Móðir: Anna Hjálmarsdóttir, skrifstofumaður í Hafnarfirði, f. 16. des. 1929. For.: Hjálmar Eiríksson, skrifstofustjóri í Vestmannaeyjum, f. 25. jan. 1900, d. 18. ágúst 1940, og k.h. Jóna Kristinsdóttir, ljósmóðir, f. 21. des. 1895, d. 27. okt. 1975. Nám: Stúdent frá Flensborg 1979. Cand. odont. frá H.Í. 1985. Tannlækningaleyfi 9. okt. 1985. Störf: Sjálfstætt starfandi tannlæknir í Reykjavík frá júní 1985 til ágúst 1988 (leigði stofu Guðjóns Kristleifssonar). Hefur rekið eigin tannlækningastofu í Hafnarfirði frá ágúst 1988. Jafnframt sinnt tannlæknaþjónustu á Kirkjubæjarklaustri frá sept. 1991. - Stundakennsla í preklínískri heilgómagerð við tannlæknadeild Háskóla Íslands 1987-88, í klínískri krónu- og brúargerð 1988-89 og í tannfyllingu 1989-93. Félags- og trúnaðarstörf: Í félagsheimilisnefnd TFÍ 1985-87. Skyldleiki/tengdir: Guðjón Kristleifsson (bróðir). |
Mynd








