Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Sigurður Lúðvígsson

Sigurður Gísli Lúðvígsson f. 8. sept. 1941 í Reykjavík.
Faðir: Lúðvíg Lúther Guðnason, kaupmaður á Selfossi, f. 15. apríl 1907, d. 11. júní 1972. For.: Guðni Þorláksson, byggingameistari í Reykjavík, f. 11. maí 1881, d. 16. des. 1914, og k.h. Jóhanna Margrét Þorláksdóttir, húsfreyja, f. 26. maí 1883, d. 12. apríl 1944.
Móðir: Ástríður Ingibjörg Sigurðardóttir, kaupkona á Selfossi, f. 22. júlí 1910. For.: Sigurður Gísli Guðmundsson, kaupmaður og póstafgreiðslumaður á Eyrarbakka, síðar bankaritari á Selfossi, f. 26. nóv. 1878, d. 22. maí 1976, og k.h. Sigríður Ólafsdóttir, húsfreyja, f. 5. mars 1886, d. 12. ágúst 1986.
Nám: Stúdent frá M.L. 1961. Cand. odont. frá H.Í. 1972. Tannlækningaleyfi 12. mars 1975.
Störf: Aðstoðartannlæknir hjá Gunnari Skaptasyni í Reykjavík frá júní 1972 til sept. 1974. Skólatannlæknir í Reykjavík frá hausti 1972 til vors 1974 og á ný frá júlí 1981 til des. 1982. Tannlæknir á Selfossi frá sept. 1974 til maí 1981 og á Dalvík frá mars 1983.
Félags- og trúnaðarstörf: Í ritnefnd Árbókar TFÍ 1981-82.
Maki I: 1. mars 1969, Ásdís Skúladóttir, f. 30. júní 1943, stúdent frá M.R. 1964, kennarapróf frá K.Í. 1965, próf frá Leiklistarskóla Íslands, B.A. í félagsfræði frá H.Í. 1977, umsjónarmaður félagsstarfs aldraðra í Kópavogi. Þau skildu 17. mars 1981, lögsk. 16. sept. 1982. For.: Skúli Þorsteinsson, skólastjóri á Eskifirði, síðar kennari í Reykjavík og námsstjóri Austurlands, f. 24. des. 1906, d. 25. jan. 1973, og k.h. Anna Sigurðardóttir, kennari, síðar forstöðumaður Kvennasögusafns Íslands og rithöfundur, f. 5. des. 1908, d. 3. jan. 1996.
Dóttir þeirra: Móeiður Anna, f. 27. júlí 1970, M.Mus. í fiðluleik frá Boston University.
Maki II: 9. febr. 1985, Hanna Sigurbjörg Kjartansdóttir, f. 3. okt. 1939, hjúkrunarpróf frá Hj.Í. 1961, hjúkrunarfræðingur. Þau skildu 1990, lögsk. 12. júní 1992. For.: Kjartan Ólafsson, húsasmíðameistari í Reykjavík, f. 7. febr. 1905, d. 5. mars 1991, og k.h. Sigurbjörg Jónsdóttir, húsfreyja, f. 29. júlí 1899, d. 2. maí 1966.
Kjörsonur þeirra: Kjartan Davíð, f. 14. júlí 1986.
Maki III: 6. sept. 1996, Guðríður Valva Gísladóttir, f. 12. maí 1954, flautuleikari og tónlistarkennari. For.: Gísli Ferdinandsson, skósmíðameistari í Reykjavík, f. 13. okt. 1927, og k.h. Sólrún Þorbjarnardóttir, húsfreyja, f. 18. maí 1928.
Fósturdóttir Sigurðar (dóttir Völvu f. sambúð): Elísabet Ásta Pálsdóttir, f. 29. sept. 1982.
Skyldleiki/tengdir: Eyþór Ómar Þórhallsson, Guðmundur Lárusson og Ómar Konráðsson (þremenningar), Pétur H. Ólafsson (tvímenningur), Sigurgeir Ingvason (maki tvím. við S.L.).



Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar