Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Anna Sigríður Stefánsdóttir

Anna Sigríður Stefánsdóttir f. 13. apríl 1960 í Reykjavík.


Faðir: Stefán Már Stefánsson, lögfræðingur, prófessor í réttarfarslegri lögfræði við Háskóla Íslands, búsettur í Reykjavík, f. 19. okt. 1938. For.: Stefán Jakobsson, múrarameistari í Reykjavík, f. 7. mars 1895, d. 18. maí 1964, og k.h. Guðrún Guðjónsdóttir, húsfreyja og rithöfundur, f. 24. des. 1903, d. 25. júlí 1989.


Móðir: Kristín Ragnarsdóttir, tannlæknir í Reykjavík, f. 17. ágúst 1940. For.: Ragnar Guðmundsson, stýrimaður og skipstjóri í Reykjavík, síðast eftirlitsmaður á Korpúlfsstöðum í Mosfellshr., Kjós., f. 6. des. 1912, d. 8. jan. 1983, og k.h. Sigríður Einarsdóttir, húsfreyja, f. 23. sept. 1916.


Nám: Stúdent frá M.H. 1980. Cand. odont. frá H.Í 1987. Tannlækningaleyfi 31. ágúst 1992.


Starf: Sjálfstætt starfandi tannlæknir í Reykjavík frá hausti 1987.


Barnsfaðir: Finnbogi Gunnlaugsson, f. 10. júní 1959, grunnskólakennari og skólastjóri Nuddskóla Íslands. For.: Gunnlaugur Helgason, tæknifræðingur í Reykjavík, f. 2. febr. 1936, og k.h. (skildu) Ólöf Finnbogadóttir, húsfreyja, f. 11. febr. 1940.


Dóttir þeirra: Tinna, f. 5. sept. 1983, stúdent frá M.H., B.Sc. í alþjóðaviðskiptum frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn, mastersnemi í fjármálum og hagnýttri hagfræði við sama skóla.


Barnsfaðir: Örn Ernst Gíslason, f. 4. maí 1958, stúdent frá V.Í. 1978, cand. odont. frá H.Í. 1990, tannlæknir í Reykjavík. For.: Ernst Gíslason, yfirflugumferðarstjóri í Reykjavík, f. 17. okt. 1921, d. 21. des. 1988, og k.h. Ingunn Þorsteinsdóttir, húsfreyja, f. 28. jan. 1927.


Sonur þeirra: Stefán Ingi, f. 7. júlí 1988. Nemi við M.K.


Maki: 9.apríl 2000, Ólafur Árni Ólafsson Thorarensen, f. 5. sept. 1961, stúdent frá M.A. 1981, cand. odont. frá H.Í. 1991, tannlæknir á Siglufirði. For.: Ólafur Árni Hinriksson Thorarensen, B.S., viðskiptafræðingur, kaupsýslumaður á Siglufirði, nú búsettur í Patalavaca á Kanaríeyjum, f. 23. ágúst 1922, og k.h. (skildu) Gisela Dahm (Valgerður Valtýsdóttir Thorarensen), húsfreyja, síðar framkvæmdastjóri í Berlín, f. 16. júní 1938.


Skyldleiki/tengdir: Kristín Ragnarsdóttir (móðir), Kristín Stefánsdóttir (systir), Ólafur Árni Thorarensen (maki), Sigríður Axelsdóttir (svilkona)




Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar