Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Guðmundur Lárusson

Guðmundur Lárusson f. 20. júní 1945 í Reykjavík.
Faðir: Lárus Þórarinn Blöndal Guðmundsson, bóksali í Reykjavík, f. 11. mars 1914. For.: Guðmundur Guðmundsson, kaupfélagsstjóri á Eyrarbakka og síðar kaupmaður á Selfossi, f. 7. jan. 1876, d. 13. apríl 1967, og k.h. Ragnheiður Lárusdóttir Blöndal, húsfreyja, f. 19. des. 1876, d. 21. okt. 1957.
Móðir: Þórunn Kjartansdóttir, húsfreyja í Reykjavík, f. 21. nóv. 1921. For.: Kjartan Konráðsson, skrifstofumaður í Reykjavík, f. 16. sept. 1887, d. 4. febr. 1953, og k.h. Áslaug Fjóla Sigurðardóttir, húsfreyja, f. 14. júní 1901, d. 17. júlí 1979.
Nám: Stúdent frá V.Í. 1966. Nám (pre. dent.) við Dalhouse University í Kanada 1968-69. Cand. odont. frá H.Í. 1974. Tannlækningaleyfi 23. febr. 1982. Tannsmíðameistarabréf útg. 23. febr. 1982.
Störf: Aðstoðartannlæknir hjá Herði Sævaldssyni í Reykjavík frá júní 1974 til júní 1977. Hefur rekið eigin tannlækningastofu í Reykjavík frá júní 1977.
Félags- og trúnaðarstörf: Yfirumsjón Neyðarvaktar TFÍ 1975-83. Í fræðslunefnd TFÍ 1978-81. Í félagsheimilisnefnd TFÍ 1981-84.
Ritstörf: Tannvernd barna, Heilbrigðismál, des. 1979. Barnatannlækningar, fræðsluerindi flutt í Ríkisútvarpinu 1976.
Maki: 10. júlí 1971, Birna Smith, f. 5. júní 1949, próf frá Fósturskóla Íslands 1971, leikskólakennari og tannsmiður. For.: Adolf Smith, forstjóri í Reykjavík, f. 4. ágúst 1912, og k.h. Guðbjörg Páley Björnsdóttir Smith, húsfreyja, f. 20. jan. 1917.
Börn þeirra: 1-2) Stúlkur (tvíburar), f. 23. nóv. 1971, d. sama dag. 3) Þórunn Birna, f. 18. maí 1973, stúdent frá V.Í. 4) Guðmundur Tjörvi, f. 6. ágúst 1976, nemi við V.Í. 5) Guðbjörg Hlín, f. 7. nóv. 1984.
Skyldleiki/tengdir: Sigurður Lúðvígsson (þremenningur).



Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar