Guðrún Gísladóttir
| Guðrún Gísladóttir f. 17. júní 1921 í Reykjavík.
Faðir: Gísli Jónsson, vélstjóri og alþingismaður í Reykjavík, f. 17. ágúst 1889, d. 7. okt. 1970. For.: Jón Hallgrímsson, útvegsbóndi í Litlabæ á Álftanesi, Bessastaðahr., Gullbr., síðar kaupmaður á Bakka í Arnarfirði, V-Barð., og víðar, f. 19. maí 1855, d. 24. mars 1921, og k.h. Guðný Jónsdóttir, húsfreyja, f. 13. ágúst 1857, d. 11. júní 1928. Móðir: Hlín Þorsteinsdóttir, húsfreyja í Reykjavík, f. 5. des. 1899, d. 9. nóv. 1964. For.: Þorsteinn Jónsson, járnsmíðameistari í Reykjavík, f. 9. júlí 1864, d. 7. júlí 1940, og k.h. Guðrún Bjarnadóttir, húsfreyja, f. 24. okt. 1867, d. 16. ágúst 1939. Nám: Stúdent frá M.R. 1939. Cand. odont. frá H.Í. 1958. Tannlækningaleyfi 5. júní 1958. Framhaldsnám í tannvegslækningum við Tufts University í Boston í Bandaríkunum 1958-59 og við University of Alabama í Birmingham 1964-65. Störf: Rak eigin tannlækningastofu og stundaði eingöngu tannvegslækningar í Reykjavík frá 1959 til ársloka 1989, er hún lét af störfum. Stundakennari í tannvegslækningum við tannlæknadeild Háskóla Íslands 1974-78, lektor í tannvegslækningum þar 1978-90. Félags- og trúnaðarstörf: Formaður kúrsusnefndar TFÍ 1972-73. Maki I: 5. júlí 1941, Baldvin Jónsson, f. 10. jan. 1911, d. 3. sept. 1996, hæstaréttarlögmaður. Þau skildu 15. ágúst 1952, lögsk. 29. okt. 1953. For.: Jón Baldvinsson, prentari, forseti Alþýðusambands Íslands, bankastjóri og alþingismaður í Reykjavík, f. 20. des. 1882, d. 17. mars 1938, og k.h. Júlíanna Guðmundsdóttir, húsfreyja, f. 16. júlí 1881, d. 7. apríl 1947. Börn þeirra: 1) Jón, f. 2. okt. 1942, framkvæmdastjóri í Mosfellsbæ. Maki I: Elín Heiðdal, f. 28. nóv. 1942, sjúkraliði í Reykjavík. Þau skildu. Maki II: Signý Jóhannsdóttir, f. 26. jan. 1951, húsfreyja. 2) Hlín, f. 1. okt. 1944, hótelstjóri í Kaupmannahöfn. Maki: Guðmundur Örn Ágústsson, f. 30. júlí 1950, d. 5. des. 1995, þjónn, síðast í Osló. Þau skildu. 3) Gísli, f. 24. jan. 1948, kennari á Akureyri. Maki: Ragnheiður Sigurðardóttir, f. 26. jan. 1948, deildarstjóri. Þau skildu. Maki II: Anna Gunnlaugsdóttir, f. 30. júní 1959, skrifstofumaður. Maki II: 15. júlí 1967, Bergur Bjarnason, f. 1. júlí 1927, hæstaréttarlögmaður. For.: Bjarni Jósefsson, efnafræðingur og kennari í Reykjavík, f. 14. mars 1892, d. 6. maí 1957, og k.h. Rósa Sigríður Eggertsdóttir, húsfreyja og kennari, f. 12. júlí 1894, d. 2. júlí 1963. |
Mynd








