Eiríkur Björnsson
Eiríkur Björnsson f. 6. des. 1959 í Reykjavík. Faðir: Björn Eiríksson, skrifstofumaður í Reykjavík, f. 16. okt. 1931. For.: Eiríkur Björnsson, læknir í Neskaupstað, síðar læknir og skólatannlæknir í Hafnarfirði, f. 15. júní 1898, d. 10. jan. 1993, og k.h. Anna Oddný Einarsdóttir, húsfreyja, f. 5. okt. 1903, d. 1. maí 1988. Móðir: Hjördís Halldórsdóttir, hjúkrunarfræðingur í Reykjavík, f. 4. apríl 1931. For.: Halldór Jónsson, búfræðingur, bóndi á Arngerðareyri í Nauteyrarhr., N-Ís., f. 28. febr. 1889, d. 24. júlí 1968, og k.h. Steinunn Guðrún Jónsdóttir, húsfreyja, f. 5. mars 1894, d. 7. sept. 1962. Nám: Stúdent frá M.H. 1978. Cand. odont. frá H.Í. í júní 1985. Tannlækningaleyfi 22. júlí 1985. Störf: Sjálfstætt starfandi tannlæknir á Akureyri frá júní 1985 til hausts 1986 og í Reykjavík frá okt. 1986. Skyldleiki/tengdir: Hólmfríður Th. Brynjólfsdóttir (E.B. tvím. við móður H.T.B.). |
Mynd








