Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Gunnar Hallgrímsson

Sigurhelgi Gunnar Hallgrímsson f. 4. ágúst 1909 á Hrafnsstöðum í Svarfaðardalshr., Eyjaf., d. 29. maí 1947 (fórst í flugslysi í Héðinsfirði, Eyjaf.).
Faðir: Hallgrímur Sigurðsson, bóndi á Hrafnsstöðum í Svarfaðardalshr., Eyjaf., f. 26. maí 1862, d. 17. febr. 1936. For.: Sigurður Ólafsson, bóndi í Syðra-Garðshorni, á Upsum og í Syðraholti í Svarfaðardal, f. 2. mars 1818, d. seint í júlí 1883 (drukknaði í Svarfaðardalsá), og seinni k.h. Helga Hallgrímsdóttir, húsfreyja, f. 2. febr. 1837, d. 8. sept. 1869.
Móðir: Þorláksína Sigurðardóttir, húsfreyja á Hrafnsstöðum í Svarfaðardalshr., Eyjaf., f. 7. nóv. 1869, d. 13. nóv. 1957. For.: Sigurður Jónsson, bóndi á Ölduhrygg í Svarfaðardal, f. 7. okt. 1836, d. 30. maí 1875, og k.h. Guðrún Soffía Friðriksdóttir, húsfreyja, f. 13. nóv. 1836, d. 28. okt. 1910.
Nám: Stúdent frá M.A. 1931. Cand. odont. frá Tannlæknaskólanum í Kaupmannahöfn 1936. Tannlækningaleyfi 26. febr. 1938.
Störf: Aðstoðartannlæknir í Kaupmannahöfn 1936-38. Rak eigin tannlækningastofu á Akureyri frá febr. 1938 til æviloka.
Félags- og trúnaðarstörf: Í taxtanefnd TFÍ 1941-42. Var mikill unnandi íþróttaiðkana og í röð leiknustu golfspilara landsins um sína daga.
Maki: 1936, Anna Miriam Hallgrímsson, f. Vestergaard (síðar Bolwig), f. 22. sept. 1904, d. 4. júlí 1986, cand. mag. í ensku og leikfimi, húsfreyja á Akureyri og síðar í Kaupmannahöfn. For.: Mads Kristian Madsen Vestergaard, skólastjóri í Óðinsvéum í Danmörku, og k.h. Mette Marie Vestergaard, húsfreyja.
Sonur þeirra: Snorri Dan, f. 2. jan. 1939, verkfræðingur hjá Alþjóðabankanum í Washington D.C. Maki: Monique Monseu, f. 2. sept. 1941, hagfræðingur.
Skyldleiki/tengdir: Úlfar Helgason (G.H. tvím. við móður Ú.H.).



Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar