Elfa Guðmundsdóttir f. 17. júní 1966 á Húsavík, S-Þing.
Faðir: Guðmundur Annas Jónsson, vélvirkjameistari og rekstrarstjóri Hita- og vatnsveitu Húsavíkur, f. 17. sept. 1941. For.: Jón Guðmundsson, sjómaður á Drangsnesi í Kaldrananeshr., Strand., f. 17. sept. 1908, d. 5. sept. 1971, og k.h. Ingibjörg Kristmundsdóttir, ljósmóðir, síðar í Kópavogi, f. 22. mars 1903.
Móðir: Rannveig Aðalbjörg Jónsdóttir, húsfreyja og dagheimilisstarfsmaður á Húsavík, f. 25 apríl 1943. For.: Jón Helgi Jakobsson, vélvirkjameistari á Húsavík, f. 27. nóv. 1914, d. 29. apríl 1988, og k.h. Fanney Daníelsdóttir, húsfreyja, f. 1. mars 1912.
Nám: Stúdent frá M.A. 1987. Cand. odont. frá H.Í. 1994. Tannlækningaleyfi 2. sept. 1994.
Störf: Aðstoðartannlæknir hjá Gunnari Helgasyni í Reykjavík frá júlí 1994 til sept. 1995. Aðstoðartannlæknir hjá Páli Ævari Pálssyni í Reykjavík frá sept. 1995.
Viðurkenning: Tók þátt í Dentsply-keppni tannlæknanema á Norðurlöndum í Kaupmannahöfn 1994.
Maki: 14. sept. 1991, Steingrímur Arnar Jónsson, f. 8. mars 1962, iðnaðartæknifræðingur, framkvæmdastjóri fræðsluráðs málmiðnaðarins. For.: Jón Grétar Hilmarsson, húsasmiður í Reykjavík, f. 13. ágúst 1929, og Hrefna Steingrímsdóttir, húsfreyja á Húsavík, f. 24. des. 1935.
Börn þeirra: 1) Fanney, f. 25. febr. 1993. 2) Jón Helgi, f. 29. maí 1997.
Skyldleiki/tengdir: Örn Á. Jónsson (móðurbróðir). |