Hafliði Elíasson
| Hafliði Elíasson f. 10. ágúst 1954 í Bolungarvík.
Faðir: Elías Guðmundsson, stöðvarstjóri Pósts og síma í Bolungarvík, f. 24. febr. 1927. For.: Guðmundur Salómonsson, sjómaður í Bolungarvík, f. 10. ágúst 1894, d. 9. apríl 1963, og k.h. Guðrún Sigurðardóttir, verkakona, f. 16. maí 1901. Móðir: Sveinborg Hafliðadóttir, húsfreyja í Bolungarvík, f. 12. sept. 1929, d. 26. ágúst 1980. For.: Hafliði Hafliðason, skósmiður í Bolungarvík, f. 26. sept. 1891, d. 25. apríl 1980, og k.h. Árný Jóna Árnadóttir, húsfreyja, f. 2. júlí 1898, d. 6. maí 1988. Nám: Stúdent frá M.T. 1976. Cand. odont. frá H.Í. 1985. Tannlækningaleyfi 20. jan. 1986. Starf: Tannlæknir í Bolungavík frá júní 1985. Félags- og trúnaðarstörf: Hefur starfað með Lionsklúbbi Bolungarvíkur frá 1985. Varamaður fyrir Alþýðuflokkinn í bæjarstjórn Bolungarvíkur frá 1993. Sambýliskona: 1977, Jóna Helga Magnúsdóttir, f. 7. ágúst 1954, hjúkrunarpróf frá Hj.Í. 1977, próf í geðhjúkrun frá N.H.S. 1979, hjúkrunarfræðingur. For.: Magnús Jónsson, bifreiðarstjóri og landpóstur á Hvammstanga, V-Hún., f. 6. sept. 1933, og k.h. Rósa Guðjónsdóttir, húsfreyja, f. 25. apríl 1933. Börn þeirra: 1) Magnús, f. 27. júní 1982. 2) Sveinborg, f. 17. apríl 1986. 3) Rósa, f. 20. apríl 1991. 4) Elísa, f. 20. apríl 1991. |
Mynd








