Elín Guðmannsdóttir
Elín Hróbjört Guðmannsdóttir f. 25. nóv. 1928 í Reykjavík. Móðir: Þorgerður Sigurgeirsdóttir, húsfreyja í Reykjavík, f. 2. febr. 1902, d. 15. júní 1984. For.: Sigurgeir Kristjánsson, verkamaður á Ísafirði, f. 26. júlí 1872, d. 25. nóv. 1925, og k.h. Bjarney Einarsdóttir, húsfreyja, f. 7. júní 1877, d. 10. sept. 1959. Nám: Stúdent frá M.R. 1947. Cand. odont. frá H.Í. 28. maí 1953. Tannlækningaleyfi 20. júlí 1953. Störf: Tannlæknir hjá Gunnari Skaptasyni í Reykjavík 1953-55. Skólatannlæknir í Reykjavík 1955-60 og í Osló 1961-62. Tannlæknir hjá Birgi J. Jóhannssyni og Herði Sævaldssyni í Reykjavík 1962-77. Tryggingatannlæknir 1977-78. Sjálfstætt starfandi tannlæknir í Reykjavík frá 1978. Félags- og trúnaðarstörf: Í stjórn Kvenstúdentafélags Íslands. Í skemmtinefnd TFÍ 1957-61. Í fyrstu stjórn félagsheimilis TFÍ (félagsheimilisnefnd) 1963-68. Í stjórn Íslensks heimilisiðnaðar. Maki: 17. ágúst 1951, Jón Ingimarsson, f. 27. okt. 1923, d. 2. sept. 1989, stúdent frá M.R. 1943, cand. juris frá H.Í. 1953, héraðsdómslögmaður, skrifstofustjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. For.: Ingimar Jónsson, prestur á Mosfelli í Grímsneshr., Árn., síðar skólastjóri Gagnfræðaskólans í Reykjavík, f. 15. febr. 1891, d. 6. jan. 1982, og k.h. Elínborg Lárusdóttir, skáldkona, f. 12. nóv. 1891, d. 5. nóv. 1976. Börn þeirra: 1) Reynir, f. 6. júní 1952, tryggingayfirtannlæknir í Reykjavík. Maki: Ingibjörg Georgsdóttir, f. 7. apríl 1953, læknir. 2) Þóra Björk, f. 2. mars 1955, B.Ed. frá K.H.Í., sérkennari í mastersnámi. Maki: Sveinn Allan Morthens, f. 10. júní 1951, uppeldisfræðingur og svæðisstjóri. 3) Ingimar Örn, f. 3. okt. 1963, viðskiptafræðingur í Reykjavík. Skyldleiki/tengdir: Reynir Jónsson (sonur). |
Mynd








