Hallur L. Hallsson
| Hallur Lífmann Hallsson f. 23. apríl 1890 í Syðstu-Görðum í Kolbeinsstaðahr., Hnapp., d. 12. okt. 1968 í Reykjavík.
Faðir: Hallur Björnsson, bóndi í Óspakstaðaseli í Miðfirði, Staðarhr., V-Hún., í Helgavatnsseli í Þverárhlíðarhr. og á Galtarhöfða í Norðurárdalshr., Mýr., í Blönduhlíð í Hörðudalshr., Dal., á Hafursstöðum og í Syðstu-Görðum í Kolbeinsstaðahr., Hnapp., f. 24. júlí 1841, d. 9. júní 1899. For.: Björn Björnsson, bóndi á Haugi í Fremri-Torfustaðahr., V-Hún., og víðar í Miðfirði, á Krossi og Fremri-Þorsteinsstöðum í Hörðudalshr., Dal., síðar á Bjarnastöðum í Kolbeinsdal, Hólahr., Skag., f. 13. apríl 1817, d. 14. sept. 1887 (drukknaði í Hjaltadalsá), og k.h. Ingibjörg Hallsdóttir, húsfreyja, f. 19. des. 1816, d. 7. okt. 1871. Móðir: Valgerður Konráðsdóttir, húsfreyja í Syðstu-Görðum í Kolbeinsstaðahr., Hnapp., f. 2. nóv. 1849, d. 4. des. 1919. (Valgerður var seinni k. Halls.) For.: Konráð Konráðsson, bóndi á Svarfhóli í Miðdalahr., Dal., f. 21. des. 1789, d. 14. jan. 1859, og k.h. Guðfinna Guðmundsdóttir, húsfreyja, f. 23. maí 1824, d. 28. maí 1858. Fósturfor.: Jón Björnsson, bóndi og smiður á Ölvaldsstöðum í Borgarhr., Mýr., f. 6. okt. 1858, d. 3. sept. 1948, og k.h. Ragnhildur Erlendsdóttir, húsfreyja, f. 19. okt. 1865, d. 20. febr. 1954. Nám: Stundaði nám við Flensborgarskóla 1907-08. Tannsmíðanám (tandteknik) á Ísafirði og í Kaupmannahöfn. Tók præliminæreksamen með aukaprófi í latínu og frönsku við undirbúningsdeild Kaupmannahafnarháskóla til inngöngu í Tannlæknaskólann í Kaupmannahöfn 1920, cand. odont. þaðan 1923. Tannlækningaleyfi, takmarkað við tannviðgerðir og tannsmíði, 14. okt. 1915, veitt fullt leyfi 6. sept. 1923. Störf: Fékkst við kennslu um einhvern tíma að loknu gagnfræðaprófi 1908. Tannsmiður í Helsingborg í Svíþjóð, á Íslandi og einkum í Færeyjum á árunum 1912-19. Hóf sjálfstæðar tannlækningar á Seyðisfirði seinni hluta árs 1923. Rak eigin tannlækningastofu í Reykjavík 1924-68. Annaðist jafnframt skólatannlækningar í Reykjavík 1925-27. Keypti röntgentæki fyrstur tannlækna hérlendis. Var fyrsti umferðartannlæknir hér á landi og ferðaðist á sumrin í þeim erindum, einkum til Austfjarða. Hafði um tíma tannlækningastofu í Hafnarfirði. - Prófdómari við tannlæknadeild Háskóla Íslands um langt árabil. Félags- og trúnaðarstörf: Meðstofnandi Tannlæknafélags Íslands 30. okt. 1927, ritari stjórnar þess 1927-39 og formaður 1939-47. Í stjórn Skandinavíska tannlæknafélagsins (Skandinavisk Tandlægeforening) 1940-52. Átti sæti í fjölmörgum nefndum TFÍ allt frá stofnun til dauðadags. Í stjórn styrktarsjóðs TFÍ 1944-64. Í taxtanefnd TFÍ 1952-63. Í bílaúthlutunarnefnd TFÍ 1955-59. Í gerðardómi TFÍ 1957-64. Í sérfræðinganefnd TFÍ 1961-63. Viðurkenning: Heiðursfélagi TFÍ 2. júní 1956. Maki: 2. nóv. 1912, Amalía Hallfríður Skúladóttir, f. 23. okt. 1891, d. 30. sept. 1972, húsfreyja. For.: Skúli Einarsson, kaupmaður og útgerðarmaður á Ísafirði, síðar (frá 1919) í Reykjavík, f. 17. okt. 1864, d. 25. jan. 1953, og k.h. Sigrún Tómasdóttir, húsfreyja, f. 22. júní 1868, d. 26. apríl 1938. Börn þeirra: 1) Skúli, f. 27. jan. 1918, d. 21. ágúst 1992, tannsmiður og bifreiðarstjóri í Reykjavík. Maki I: Rósa Guðnadóttir, f. 4. apr. 1913, húsfreyja. Þau skildu. Maki II: Ingibjörg Júlíana Eðvaldsdóttir, f. 27. nóv. 1927, húsfreyja. 2) Hallur, f. 8. febr. 1920, d. 23. júní 1980, tannlæknir í Reykjavík. Maki: Anne Marie Hallsson, f. Sørensen, f. 23. apríl 1923, húsfreyja. 3) Hulda María Hallsdóttir (kjördóttir), f. 30. sept. 1930, tannsmiður í Reykjavík. Maki: Björgvin Salómonsson, f. 17. jan. 1934, skólastjóri. Skyldleiki/tengdir: Hallur Hallsson (sonur), Leonhard Ingi Haraldsson (maki sonardóttur). |
Mynd








