Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Elín S. Wang


Elín Svarrer Wang f. 16. nóv. 1970 í Þórshöfn í Færeyjum.



Faðir: Zakarías Wang, stjórnmálafræðingur og kennari í Þórshöfn í Færeyjum, f. 23. ágúst 1940. For.: Poul Wang, bóndi í Kaldbak í Færeyjum, f. 5. apríl 1908, og k.h. Elsebeth Christine Wang (fædd Simonsen), húsfreyja s.st., f. 13. jan. 1915.



Móðir: Margit Svarrer, tannlæknir í Færeyjum, f. 25. apríl 1939. For.: Ehlert Rødgaard Svarrer, aðalbókari í Bylderup Bou í Danmörk, f. 22. des. 1905, d. 23. des. 1995 og k.h. Ellen Marie Svarrer (fædd Thomsen), verslunarmaður, f. 12. maí 1909, d. 10. sept. 1970.



Nám: Stúdent frá Føroya Studentaskóli 1989. HH. frá Föroya Handilsskóla (Versllunarskóli Færeyja) 1990. Cand. odont frá Háskóla Íslands 1998. Tannlæknaleyfi 10. nóvember 1998.



Störf: Aðstoðartannlæknir hjá Ingólfi Eldjárn og Gunnari Rósarssyni frá júní 1998 til feb. 2001. Hefur rekið eigin tannlæknastofu í Reykjavík frá mars 2001.



Félags- og trúnaðarstörf: Í ritnefnd Harðjaxls 1996. Í stjórn Færeyingafélagsins í Reykjavík 1994--98 og 2000-06, þar af formaður 1997-1998 og 2000-06. Í stjórn FUMFS (Félags um munnheilsu fólks með sérþarfir, Íslandsdeild NFH) frá 2005. Í lyfjanefnd TFÍ frá 2006. 



Viðurkenning: Tók þátt í Dentsply-keppni tannlæknanema í Kaupmannahöfn 1998.



Ritstörf: Tannholdsástand íbúa Þórshafnar í Færeyjum, Tannlæknablaðið 1998.



Maki: 27. júlí 2002 (sambúð frá 1994), Atli Atlason, viðskiptafræðingur, f. 8. október 1966. For.: Atli Pálsson, bifreiðastjóri og afgreiðslumaður, f. 18. ágúst 1939 og k.h. Margrét Sigríður Einarsdóttir, forstöðumaður, f. 22. maí 1939.



Börn: Elvar Wang f. 18. nóv. 1998 og Eva Margit Wang f. 18. júní 2001.





Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar