Haukur Filippusson
| Haukur Filipps Filippusson f. 16. jan. 1939 í Reykjavík.
Faðir: Filippus Gunnlaugsson, verslunarmaður í Reykjavík, f. 17. maí 1905, d. 12. apríl 1981. For.: Gunnlaugur Magnússon, bóndi og hreppstjóri í Ósi í Steingrímsfirði, Hrófbergshr., Strand., f. 15. des. 1871, d. 5. jan. 1947, og k.h. Marta Guðrún Magnúsdóttir, húsfreyja, f. 1. nóv. 1874, d. 30. apríl 1946. Móðir: Sigríður Gissurardóttir, húsfreyja í Reykjavík, f. 27. nóv. 1909. For.: Gissur Jónsson, bóndi og hreppstjóri í Drangshlíð í A-Eyjafjallahr., Rang., f. 15. des. 1868, d. 24. febr. 1945, og k.h. Guðfinna Ísleifsdóttir, ljósmóðir og húsfreyja, síðar í Reykjavík, f. 5. febr. 1877, d. 23. des. 1971. Nám: Stúdent frá M.R. 1959. Cand. odont. frá H.Í. 1969. Tannlækningaleyfi 20. febr. 1970. Störf: Skólatannlæknir í Reykjavík frá 1969. Aðstoðartannlæknir hjá Jónasi Thorarensen í Reykjavík 1969-73. Hefur rekið eigin tannlækningastofu í Reykjavík frá 1973. Félags- og trúnaðarstörf: Formaður stjórnar Félags íslenskra tannlæknanema 1965-66. Í skemmtinefnd TFÍ 1970-73. Í skólanefnd Tannsmíðaskóla TFÍ 1971-74. Gjaldkeri í stjórn TFÍ 1976-78. Í 50 ára afmælisnefnd TFÍ 1977. Endurskoðandi TFÍ 1978-82. Í bridge- og taflnefnd 1978-79. Í ritstjórn Tannlæknablaðsins 1983-84. Í stjórn Félags skólatannlækna í Reykjavík frá 1994. Maki: 24. ágúst 1960, Ragnheiður Kristín Másdóttir Benediktsson, f. 27. des. 1939, stúdent frá MR. 1959, B.A. í uppeldisfræði frá H.Í. 1984, uppeldisfræðingur. For.: Stefán Már Benediktsson, kaupsýslumaður í Reykjavík, f. 24. júlí 1906, d. 12. febr. 1945, og k.h. Sigríður Oddsdóttir Benediktsson, húsfreyja, f. 18. sept. 1907, d. 29. ágúst 1988. Börn þeirra: 1) Þórdís, f. 15. okt. 1964, sjúkranuddari frá Boulder í Colorado, nemi í heimspeki við H.Í. Maki: Sævar Marinó Mikaelsson Ciesielski, f. 6. júlí 1955, trésmiður. Þau skildu. 2) Orri, f. 28. mars 1971, B.Sc. frá H.Í., vélaverkfræðingur hjá Hf. Eimskipafélagi Íslands í Reykjavík. |
Mynd








