Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Elín Sigurgeirsdóttir


Elín Sigurgeirsdóttir f. 9. febr. 1967 í Worcester í Massachusetts í Bandaríkjunum.



Faðir: Sigurgeir Kjartansson, sérfræðingur í æðaskurðlækningum í Reykjavík, f. 7. mars 1938. For.: Kjartan Einarsson, bóndi í Þórisholti í Mýrdal, Hvammshr., V-Skaft., f. 27. ágúst 1893, d. 28. júlí 1970, og k.h. Þorgerður Einarsdóttir, húsfreyja, f. 28. mars 1901.



Móðir: Halla Sigurjóns, tannlæknir í Reykjavík, f. 15. nóv. 1937 d. 31. mars 2002. For.: Sigurður Jónsson, rafvirkjameistari og bæjarfulltrúi í Reykjavík, f. 10. apríl 1894, d. 4. júní 1938, og Elín Þorláksdóttir, ljósmóðir í Ölfushr., Árn., síðar í Reykjavík, f. 29. okt. 1904. Stjúpfaðir (Höllu): Sigurður Grímsson, verkstjóri í Reykjavík, f. 10. maí 1888, d. 1. júní 1980.



Nám: Stúdent frá M.S. 1986. Cand. odont. frá H.Í. 1993. Tannlækningaleyfi 23. ágúst 1993. Framhaldsnám í munngervalækningum (prosthetic dentistry) við University of North Carolina frá júlí 1995.



Störf: Tannlæknir á tannlækningastofu Höllu Sigurjóns í Reykjavík frá júlí 1993 til maí 1995. Kennari við Þroskaþjálfaskóla Íslands vorið 1995.



Félags- og trúnaðarstörf: Formaður skemmtinefndar F.Í.T. 1989-90. Ritari í stjórn F.Í.T. 1991-92.



Viðurkenning: Hlaut 2. verðlaun í Dentsply-keppni tannlæknanema á Norðurlöndum í Kaupmannahöfn vorið 1991.



Ritstörf: Sýrueyðingar á tönnum. Fjölþátta sjúkdómur?, Tannlæknablaðið 1:1991.



Maki: 6. ágúst 1988, Kristján Hallvarðsson, f. 4. maí 1967, rafvélavirki frá Iðnsk. Rvík 1987, C.Sc. í rafmagnsverkfræði frá H.Í. 1993, í framhaldsnámi við North Carolina State University. For.: Hallvarður Guðni Kristjánsson, bóndi á Þingvöllum í Helgafellssveit, Snæf., f. 18. sept. 1928, og k.h. Sigurlín Gunnarsdóttir, húsfreyja, f. 17. maí 1936.



Dætur þeirra: 1) Halla, f. 16. des. 1992. 2) Katla, f. 29. okt. 1994.



Skyldleiki/tengdir: Halla Sigurjóns (móðir).





Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar