Hermann Jón Ásgeirsson
| Hermann Jón Ásgeirsson f. 11. mars 1942 á Ísafirði, d. 25. júní 1991 í Reykjavík.
Faðir: Ásgeir Guðmundur Sigurðsson, járnsmíðameistari á Ísafirði, f. 7. okt. 1917, d. 25. mars 1988. For.: Sigurður Ólafsson, bóndi í Bæjum í Snæfjallahr., N-Ís., síðar verkamaður á Ísafirði, f. 12. maí 1882, d. 25. mars 1959, og k.h. María Rebekka Ólafsdóttir, húsfreyja, f. 1. sept. 1880, d. 9. apríl 1970. Móðir: Kristín Anna Hermannsdóttir, húsfreyja og verkakona á Ísafirði, f. 14. nóv. 1918. For.: Hermann Hermannsson, búfræðingur, útvegsbóndi á Svalbarði í Ögurvík, Ögurhr., N-Ís., síðar sjómaður og verkamaður á Ísafirði, f. 17. maí 1893, d. 26. nóv. 1981, og k.h. Salóme Rannveig Gunnarsdóttir, húsfreyja, f. 24. apríl 1895, d. 20. nóv. 1977. Nám: Stúdent frá M.A. 1962. Cand. odont. frá H.Í. í jan. 1969. Tannlækningaleyfi 20. febr. 1970. Sótti námskeið í barnatannlækningum við Tannlæknaháskólann í Gautaborg í 4 mánuði 1978. Störf: Tannlæknir á Ísafirði 1969-72. Rak eigin tannlækningastofu í Kópavogi frá 1972 til æviloka. - Stundakennari við tannlæknadeild Háskóla Íslands frá hausti 1980 til 1984. Maki: 15. apríl 1965, Guðfinna Sigurborg Gunnþórsdóttir, f. 2. febr. 1945, húsfreyja og svæðanuddari. For.: Gunnþór Björnsson, skrifstofustjóri og bæjarstjóri á Seyðisfirði, f. 18. febr. 1904, d. 31. júlí 1987, og k.h. Guðrún Katrín Jónsdóttir, húsfreyja, f. 21. nóv. 1910, d. 7. jan. 1956. Börn þeirra: 1) Gunnþór, f. 17. sept. 1965, stúdent frá M.K., garðyrkjufræðingur í Kópavogi. 2) Björn, f. 27. nóv. 1968. 3) Katrín, f. 10. mars 1970, stúdent frá M.K., aðstoðarmaður tannlæknis í Reykjavík. 4) Kristín Anna, f. 11. okt. 1971, stúdent frá M.K., próf frá Ferðamálaskóla Flugleiða, starfsmaður Flugleiða hf. í Reykjavík. Skyldleiki/tengdir: Þórður Birgisson (tvímenningur). |
Mynd








