Hörður Einarsson
| Hörður Einarsson f. 29. apríl 1938 í Hrísey á Eyjafirði [d. 25. mars 1999].
Faðir: Einar Malmquist Þorvaldsson, kennari og skólastjóri í Hrísey á Eyjafirði, Akureyri, í Hafnarfirði og Reykjavík, f. 9. okt. 1905, d. 24. júní 1984. For.: Þorvaldur Jónsson, trésmiður í Hrísey, f. 10. sept. 1875, d. 11. nóv. 1941, og k.h. Kristín Einarsdóttir, húsfreyja, f. 11. sept. 1880, d. 10. jan. 1968. Móðir: Sigríður Jónsdóttir, húsfreyja í Hrísey á Eyjafirði, Akureyri, í Hafnarfirði og Reykjavík, f. 25. apríl 1912, d. 4. des. 1964. For.: Jón Þórðarson, verkstjóri í Reykjavík, f. 10. apríl 1878, d. 16. des. 1977, og k.h. Gréta María Jónsdóttir, húsfreyja, f. 22. nóv. 1880, d. 4. jan. 1941. Nám: Stúdent frá M.A. 1957. Nám í tannlækningum við Friedrich-Alexander-Universität í Erlangen í Þýskalandi 1957-64, cand. odont. í febr. 1964. Tannlækningaleyfi 30. júní 1964. Störf: Aðstoðartannlæknir hjá Magnúsi R. Gíslasyni í Reykjavík frá mars 1964 til sept. 1966 og Halli L. Hallssyni sept.-des. 1966. Hefur rekið eigin tannlækningastofu í Reykjavík frá jan. 1967. Félags- og trúnaðarstörf: Í fræðslunefnd TFÍ 1965-74. Í stjórn (meðstjórnandi) TFÍ 1966-68. Í stjórn Vísindasjóðs TFÍ 1968-73. Í jólatrésnefnd TFÍ 1973-76. Í ritnefnd Árbókar TFÍ 1975-77. Í stjórn Rótarýklúbbsins Görðum 1977-78. Varamaður í skólanefnd Garðabæjar frá 1978. Í ritnefnd Tannlæknablaðsins 1983-84. Maki: 28. des. 1962, Sigríður Antonsdóttir, f. 30. júní 1938, hjúkrunarpróf frá Hj.Í. 1962, hjúkrunarfræðingur. For.: Guðmundur Anton Tómasson, bifreiðarstjóri á Hofsósi, Skag., f. 21. nóv. 1914, d. 14. sept. 1982, og k.h. Líney Sigurlaug Kristinsdóttir, húsfreyja á Hofsósi, síðar forstöðukona Dvalarheimilisins Áss í Hveragerði, f. 28. des. 1913. Börn þeirra: 1) Líney, f. 16. okt. 1963, d. 19. maí 1986, hjúkrunarfræðingur í Garðabæ. 2) Guðfinna, f. 14. mars 1967, B.A. í þýsku frá H.Í., stundar magisternám í þýsku við Kaupmannahafnarháskóla. Maki: Hafsteinn Gunnar Jónsson, f. 28. mars 1967, C.S. í vélaverkfræði frá H.Í., vélaverkfræðingur. 3) Hrafnkell, f. 1. mars 1973, stúdent frá M.R., nemi í vélfræði við T.Í. |
Mynd








