Elmar E. Geirsson
Ernst Elmar Geirsson f. 25. júlí 1948 í Reykjavík. Faðir: Geir Reynir Tómasson, tannlæknir í Reykjavík, f. 24. júní 1916. For.: Thomas Thomassen, múrari og útvegsbóndi á Nesi í Norðfirði, S-Múl., f. 21. okt. 1878, d. 6. febr. 1935, og Kristín Hansdóttir, húsfreyja í Reykjavík, f. 8. mars 1878, d. 16. ágúst 1971. Móðir: María Elfriede Bell, húsfreyja og snyrtisérfræðingur í Reykjavík, f. 26. júlí 1921. For.: Ernst Bell, stórkaupmaður í Köln í Þýskalandi, f. 30. júlí 1886, d. 30. sept. 1957, og k.h. María Bell, f. Regel, húsfreyja, f. 10. júlí 1891, d. 9. febr. 1952. Nám: Stúdent frá M.R. 1968. Cand. odont. frá Freie Universität í Berlín 1974. Tannlækningaleyfi í V-Þýskalandi 1974 og á Íslandi 21. júlí 1977. Störf: Aðstoðartannlæknir hjá dr. Klaus Maier í Trier í Þýskalandi frá maí 1974 til 1976. Sjálfstætt starfandi tannlæknir hjá Geir R. Tómassyni í Reykjavík frá jan. 1977 til nóv. 1978. Rak eigin tannlækningastofu á Akureyri frá maí 1978 til nóv. 1986. Hefur rekið eigin tannlækningastofu í Mosfellsbæ frá nóv. 1986. Félags- og trúnaðarstörf: Varamaður í stjórn Tannlæknafélags Norðurlands 1980-82. Í ársþings- og endurmenntunarnefnd TFÍ 1994. Maki: 31. des. 1975, Sigríður Jónsdóttir Hjaltested, f. 28. mars 1952, tannsmiður. For.: Jón Einar Lárusson Hjaltested, yfirverkstjóri í Reykjavík, f. 25. ágúst 1925, og k.h. Fríða Sigurveig Halldórsdóttir Kærnested, húsfreyja, f. 24. nóv. 1927. Dætur þeirra: 1) Karin Erna, f. 27. maí 1976, stúdent frá M.S. 2) Fríða Hrönn, f. 7. júlí 1978, nemi við M.S. Skyldleiki/tengdir: Geir Reynir Tómasson (faðir). |
Mynd








