Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Inge Björnsson

Inge Jónsdóttir Björnsson f. 19. apríl 1921 í Kaupmannahöfn, d. 29. febr. 1992 í Hróarskeldu.
Faðir: Jón Sigfús Björnsson, læknir í Humble á Langalandi í Danmörku, síðast búsettur í Troense á Tåsing á Fjóni, f. 8. febr. 1892, d. 14. maí 1966. For.: Björn Sigfússon, bóndi og umboðsmaður í Grímstungu í Vatnsdal, Áshr., A-Hún., f. 22. júní 1849, d. 11. okt. 1932, og k.h. Ingunn Jónsdóttir, húsfreyja, f. 30. júlí 1855, d. 7. ágúst 1947.
Móðir: Astrid Sofie Björnsson, f. Andersen, húsfreyja í Humble á Langalandi, f. 23. nóv. 1887, d. 2. júní 1947. Faðir: Rasmus Theodor Andersen, rithöfundur og blaðamaður í Kaupmannahöfn, f. 26. jan. 1850, d. 9. febr. 1911.
Nám: Stúdent frá Marie Kruses Skole á Frederiksberg 1940. Cand. odont. frá Tannlæknaskólanum í Kaupmannahöfn 1945. Tannlækningaleyfi 22. apríl 1948.
Störf: Aðstoðartannlæknir í Danmörku 1945-48. Sjálfstætt starfandi tannlæknir í Kaupmannahöfn frá mars 1948 til 1. jan. 1951. Tannlæknir á Siglufirði febr.-ágúst 1951. Sjálfstætt starfandi tannlæknir í Kaupmannahöfn frá 3. sept. 1951 til 1. apríl 1963, er hún hætti störfum vegna veikinda. - Var síðast búsett í Hróarskeldu í Danmörku.*



Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar