Ari Bjarnason f. 20. maí 1965 á Akranesi.
Faðir: Bjarni Arason, búfræðikandídat, héraðsráðunautur í Borgarnesi, f. 3. júlí 1921. For.: Ari Bjarnason, bóndi á Grýtubakka í Höfðahverfi, Grýtubakkahr., S-Þing., f. 24. ágúst 1893, d. 11. mars 1965, og k.h. Sigríður Árnadóttir, húsfreyja, f. 26. júlí 1896, d. 31. ágúst 1962.
Móðir: Kristín Haraldsdóttir, talsímavörður í Borgarnesi, f. 18. júní 1929. For.: Haraldur Guðmundsson, útgerðarmaður á Akureyri, f. 6. mars 1892, d. 10. júní 1958, og k.h. Jóhanna Jónsdóttir, húsfreyja, f. 14. ágúst 1895, d. 2. mars 1972.
Nám: Stúdent frá M.A. 1985. Cand. odont. frá Oslóarháskóla 1993. Tannlækningaleyfi 6. okt. 1993.
Störf: Tannlæknir í Búðardal frá ágúst 1993 til júlí 1995 og í Ólafsvík frá ágúst 1995.
Maki: 29. júlí 1991, Fanný Berit Sveinbjörnsdóttir, f. 25. nóv. 1965, stúdent frá F.Á. 1985, B.Sc. í hjúkrunarfræði frá H.Í. 1990, hjúkrunarfræðingur hjá Heilsugæslustöð Ólafsvíkur. For.: Sveinbjörn Helgason, húsasmíðameistari í Reykjavík, f. 28. nóv. 1937, og k.h. Aud Marry Helgason, f. Båtnes, starfsstúlka á dagheimili, f. 12. apríl 1940 (frá Molde í Noregi).
Börn þeirra: 1) Tinna Björk, f. 18. mars 1988. 2) Brynja Aud, f. 22. júní 1993, 3) Bjarni f. 4. júní 2001
|