Elsa A. Steingrímsdóttir
Elsa Albína Steingrímsdóttir f. 5. ágúst 1967 í Reykjavík. Faðir: Steingrímur Þórðarson, bankastarfsmaður í Reykjavík, f. 23. apríl 1922. For.: Þórður Jónasson, bóndi á Ljósalandi í Vopnafjarðarhr., N-Múl., f. 13. júní 1867, d. 3. mars 1938, og k.h. Albína Jónsdóttir, húsfreyja, f. 17. júní 1874, d. 9. maí 1966. Móðir: Halla Eiríksdóttir, húsfreyja í Reykjavík, f. 8. júlí 1924. For.: Eiríkur Bjarnason, skrifstofumaður í Reykjavík, f. 21. mars 1895, d. 8. sept. 1977, og k.h. Else Andrea Andreasdóttir Figved, húsfreyja, f. 27. júlí 1901, d. 15. mars 1991. Nám: Stúdent frá M.R. 1987. Cand. odont. frá H.Í. 1994. Tannlækningaleyfi 30. júní 1995. Starf: Aðstoðartannlæknir hjá Birni Þorvaldssyni í Reykjavík frá apríl 1995. Félags- og trúnaðarstörf: Gjaldkeri í stjórn Félags ísl. tannlæknanema 1992-93. Maki: 19. okt. 1996, Hans Guttormur Hansson Þormar, f. 22. jan. 1970, stúdent frá F.G. 1990, líffræðinemi við H.Í. For.: Hans Guttormur Geirsson Þormar, yfirtæknifræðingur hjá Pósti og síma, búsettur í Kópavogi, f. 25. febr. 1927, d. 14. ágúst 1997, og k.h. Hrönn Jónsdóttir Þormar, félagsráðgjafi, f. 2. maí 1939. Sonur þeirra: Eiríkur Andri, f. 24. júní 1996. |
Mynd








