Thyra Loftsson
| Thyra Ingibjörg Jensdóttir Loftsson, f. Lange f. 7. febr. 1901 í Reykjavík, d. 23. okt. 1970 í Reykjavík.
Faðir: Jens Severin Lange, málarameistari í Reykjavík, f. 6. nóv. 1872, d. 10. nóv. 1931. For.: Niels Lange, iðnaðarmeistari í Randers á Jótlandi í Danmörku, og k.h. Anna Maria Lange, f. Bartelsdatter, húsfreyja. Móðir: Þuríður Jakobsdóttir Lange, handavinnukennari í Reykjavík, f. 1. des. 1872, d. 2. jan. 1961. For.: Jakob Jósefsson, bóndi og hreppstjóri á Spákonufelli, í Háagerði og á Árbakka í Vindhælishr., A-Hún., f. 27. jan. 1842, d. 20. febr. 1907, og k.h. Björg Jónsdóttir, húsfreyja, f. 29. ágúst 1844, d. 23. nóv. 1925. Nám: Stúdent frá M.R. 1920. Cand. odont. frá Tannlæknaskólanum í Kaupmannahöfn 1925. Fyrsta íslenska konan sem lauk tannlæknaprófi. Tannlækningaleyfi 12. mars 1929. Námsferðir til Norðurlandanna til að kynna sér tannlækningar. Störf: Aðstoðartannlæknir við De Sjællandske Sygekassers Tandklinik í Holbæk í Danmörku 1926-27 og afleysingatannlæknir um tíma. Tók við forstöðu skólatannlækningastofu Reykjavíkur í Miðbæjarskólanum árið 1927 og gegndi því starfi til ársloka 1968. Félags- og trúnaðarstörf: Meðstofnandi Tannlæknafélags Íslands 30. okt. 1927 og gjaldkeri stjórnar þess 1928-51 og 1954-56. Í fræðslu- og útbreiðslunefnd TFÍ um tíma. Í stjórn Skandinavíska tannlæknafélagsins 1940-60. Meðstofnandi og um tíma í stjórn Félags íslenskra kvenstúdenta. Í stjórn styrktarsjóðs TFÍ 1944-70, formaður 1946-69. Í nefnd til að fjalla um kjör skólatannlækna 1945-46. Í skemmtinefnd TFÍ 1952-59. Viðurkenningar: Kjörin heiðursfélagi TFÍ á 40 ára afmæli félagsins 1967. Sæmd heiðursmerki félagsins úr gulli. Maki: 3. júlí 1932, Pálmi Anton Loftsson, f. 17. sept. 1894, d. 18. maí 1953, skipstjóri og forstjóri Skipaútgerðar ríkisins. (Thyra var seinni k.h.) For.: Loftur Jónsson, bóndi og trésmiður á Miðhóli í Fellshr., Skag., f. 4. febr. 1853, d. 20. apríl 1941, og k.h. Ingibjörg Kristín Þóroddsdóttir, húsfreyja, f. 18. sept. 1864, d. 5. mars 1912. Kjördóttir þeirra: 1) Alice Björg, f. 18. des. 1945, húsfreyja í Danmörku. Maki: Skúli Geir Tryggvason, f. 6. febr. 1945, prentsmiður í Danmörku. Þau skildu. (For. Bjargar: Kristen Ravn, og Mary Rasmussen, húsfreyja, f. 27. ágúst 1923.) Stjúpdætur Thyru (dætur Pálma og fyrri k.h., Guðríðar Vilhjálmsdóttur, f. 28. júní 1898, d. 2. sept. 1925): 2) Sigríður, f. 30. sept. 1923, húsfreyja í Reykjavík. Maki: Gunnar Helgason, f. 10. apríl 1925, erindreki Sjálfstæðisflokksins, forstöðumaður. 3) Guðríður, f. 12. júní 1925, húsfreyja í Reykjavík. Maki: Garðar Hólm Pálsson, f. 2. jan. 1916, d. 31. júlí 1984, verkamaður. Skyldleiki/tengdir: Jón Haraldsson (T.L. tvím. við föður J.H.). |
Mynd








