Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Elva Björk Sigurðardóttir

Elva Björk Sigurðardóttir f. 27. nóvember 1971 í Reykjavík.


Faðir: Sigurður E. L. Guðmundsson, matreiðslumaður í Reykjavík, f. 6. nóv. 1946. For.: Guðmundur Laxdal Jóhannesson, verkstjóri hjá Eimskip í Reykjavík, f. 8. ágúst 1920 og k.h. Sigríður Breiðfjörð Sigurðardóttir, húsmóðir Reykjavík, f. 11. sept. 1923, d. 23. maí 1992.


Móðir: Ásta Haraldsdóttir, starfsmaður Félagsþjónustunnar í Reykjavík, f. 24. des. 1953. For.: Ármann Haraldur Guðmundsson, bóndi Hróarstungu í Múlasýslu, f. 16. október 1920, d. 2. febr. 1985 og k.h. Kristbjörg Lukka Jónsdóttir, bóndi s.st. og síðar Egilsstöðum, f. 8. mars 1925.


Nám: Stúdent frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1991. Cand. odont frá HÍ. júní 1998. Tannlæknaleyfi 5. júlí 1999.


Störf: Aðstoðartannlæknir hjá Áslaugu Óskarsdóttur í Garðabæ frá maí 1998- júní 2000 og Guðjóni Kristleifssyni og Þorsteini Sch. Thorsteinssyni í Reykjavík frá júní 2000- júní 2002. Hefur rekið eigin tannlæknastofu í Kópavogi frá júní 2002.

Félags- og trúnaðarstörf: Í Kennslunefnd tannlæknadeildar 1994-1995 og fulltrúi nemenda á deildarfundum 1995-1996. Í stjórn FUT 1998-2001.


Ritstörf: Tannlæknablaðið 1998: Tannholdsástand Þórshafnaríbúa á aldrinum 35-44 ára samkvæmt CPITN- matskerfinu.


Sambýlismaður: 1990. Ríkharður Flemming Jensen, tannsmiður í Reykjavík, f. 21. jan. 1969. For.: John Flemming Jensen, kjötiðnaðarmaður á Akureyri, f. 28. feb. 1943 og Hólmfríður Þorvaldsdóttir, aðalbókari í Mosfellsbæ, f. 13. júlí 1947. (Þau skildu).


 




Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar