Þorvaldur Torfason
| Þorvaldur Torfason f. 26. jan. 1945 á Akureyri.
Faðir: Torfi Maronsson, smiður og síðar sjúkraþjálfari á Akureyri, f. 4. okt. 1908, d. 3. des. 1975. For.: Maron Sigursteinn Sölvason, trésmíðameistari á Siglufirði og Akureyri, f. 9. júní 1881, d. 26. mars 1958, og k.h. Helga Grímhildur Helgadóttir, húsfreyja, f. 8. nóv. 1884, d. 18. ágúst 1972. Móðir: Gyða Þorvaldsdóttir Thoroddsen, yfirhjúkrunarkona við Kristneshæli í Eyjafirði, f. 8. sept. 1920. For.: Þorvaldur Skúlason Thoroddsen, iðnverkamaður í Powell River í British Columbia í Kanada, f. 11. febr. 1892, d. 13. júlí 1977, og k.h. Hólmfríður Aradóttir Thoroddsen, húsfreyja, f. 17. sept. 1895, d. 21. júlí 1962. Nám: Stúdent frá M.A. 1963. Cand. odont. frá H.Í. 1970. Tannlækningaleyfi á Íslandi í júní 1970. National Dental Examining Board of Canada, Montreal, 1971. Tannlækningaleyfi í British Columbia 12. apríl 1972. Framhaldsnám í tannvegssjúkdómum við Loma Linda University í Kaliforníu í Bandaríkjunum 1975-77, sérfræðipróf þaðan 1977. Sérfræðingsleyfi í tannvegslækningum í British Columbia 1978. Störf: Tannlæknir á Egilsstöðum 1970-71 og á Akureyri 1971-72. Tannlæknir í Kanada 1972-75. Rak eigin tannlækningastofu í Powell River í British Columbia í Kanada frá 1977 til mars 1996. Flutti til Washingtonríkis í Bandaríkjunum í apríl 1997 og hefur starfað þar við sérgrein sína síðan. Félags- og trúnaðarstörf: Ritstjóri Harðjaxls 1967. Ritstörf: Clinical Improvement of Surgial Conditions (ásamt öðrum), J. Clin. Period., 6:1979, 165-176. Maki: 25. mars 1976, Lou Ann Cummings, f. 29. jan. 1950, læknir. For.: Thomas John Cummings, dr. med., læknir í Kaliforníu í Bandaríkjunum, f. 24. des. 1924, og k.h. (skildu 1976) Lucy Pratt Heald, hjúkrunarfræðingur, f. 10. maí 1926. Börn þeirra: 1) Anna Ragnhildur, f. 7. okt. 1979. 2) Orlyn Ingvi, f. 25. jan. 1982. 3) Skúli Jón, f. 23. mars 1985. Skyldleiki/tengdir: Ásta Björt Thoroddsen og Helgi Indriðason (þremenningar), Ólöf Regína Torfadóttir og Skúli Torfason (systkin). |
Mynd








