Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Þórunn Clementz Þorkelsdóttir

Þórunn Clementz Þorkelsdóttir f. 24. júní 1926 í Reykjavík. [d. 30. maí 1999]
Faðir: Ingimundur Ögmundsson, sjómaður í Reykjavík, síðar útgerðarmaður og byggingameistari á Ísafirði, f. 16. apríl 1881, d. 28. maí 1968. For.: Ögmundur Kristjánsson, bóndi á Fjarðarhorni í Bæjarhr., Strand., og á Hálsi í Skógarstrandarhr., Snæf., f. 19. ágúst 1854, d. 6. febr. 1924, og k.h. Sigurbjörg Sigurðardóttir, húsfreyja, f. 29. sept. 1844, d. 9. des. 1933.
Móðir: Auðbjörg Árnadóttir, húsfreyja í Reykjavík, f. 22. okt. 1889, d. 25. júní 1926. (Auðbjörg var fyrri k. Ingimundar). For.: Árni Þórðarson, bóndi í Auðsholti í Biskupstungnahr., Árn., og í Starkaðarhúsum á Stokkseyri, síðar í Reykjavík, f. 18. okt. 1851, d. 26. jan. 1905, og k.h. Oddbjörg Pálsdóttir, húsfreyja, f. 18. okt. 1859, d. 3. okt. 1932.
Kjörfaðir: Þorkell Þorkelsson Clementz, vélfræðingur í Reykjavík, f. 10. apríl 1880, d. 22. sept. 1955. For.: Þorkell Þorkelsson, prentari í Reykjavík, í Danmörku og á Eskifirði, síðast í Kaupmannahöfn, f. 23. mars 1837, d. 8. mars 1881, og Guðríður Egilsdóttir, húsfreyja í Hafnarfirði, f. 21. mars 1861, d. 21. des. 1913.
Kjörmóðir: Þórunn Einarsdóttir Clementz, húsfreyja í Reykjavík, f. 7. nóv. 1894, d. 9. maí 1991. For.: Einar Ásgeirsson, bóndi í Firði í Múlahr., A-Barð., f. 30. ágúst 1856, d. 30. okt. 1900, og k.h. Jensína Jónsdóttir, húsfreyja, f. 8. jan. 1859, d. 19. maí 1936.
Nám: Stúdent frá M.R. 1946. Cand. odont. frá H.Í. í febr. 1951. Tannlækningaleyfi 5. mars 1951.
Störf: Húsmóðurstörf í Reykjavík frá apríl 1951. Aðstoðartannlæknir hjá Skúla Hansen í Reykjavík frá nóv. 1951 til maí 1955.
Maki: 8. apríl 1951, Tómas Helgason, f. 14. febr. 1927, stúdent frá M.R. 1946, cand. med. frá H.Í. 1952, dr. med. frá Árósaháskóla 1964, sérfræðingur í geð- og taugasjúkdómum, yfirlæknir og prófessor. For.: Helgi Hagbart Tómasson, dr. med., yfirlæknir við Kleppsspítala í Reykjavík, f. 25. sept. 1896, d. 2. ágúst 1958, og k.h. Kristín Bjarnadóttir, húsfreyja, f. 29. maí 1894, d. 8. júní 1949.
Börn þeirra: 1) Helgi, f. 20. sept. 1955, tölfræðingur og dósent í Reykjavík. Maki: Anna Sigurmundsdóttir, f. 2. nóv. 1959, kennari. 2) Þór, f. 17. ágúst 1958, efnaverkfræðingur á Seltjarnarnesi. Maki: Gunnhildur Þórðardóttir, f. 13. okt. 1958, tónmenntakennari. 3) Kristinn, f. 21. nóv. 1959, geðlæknir í Reykjavík. Maki: Þorbjörg Jóhanna Gunnarsdóttir, f. 18. febr. 1961, hjúkrunarfræðingur.



Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar