Árni Gunnar Árnason Ásgeirsson f. 11. okt. 1937 í Stoneham í Massachusetts í Bandaríkjunum. Faðir: Árni Ásgeirsson, sjómaður og trésmiður í East Orange í New Jersey, Boston og Wakefield í Massachusetts í Bandaríkjunum, f. 11. febr. 1898, d. 4. mars 1967. For.: Ásgeir Eyþórsson, kaupmaður í Kóranesi og Straumfirði í Álftaneshr., Mýr., síðar verslunarmaður og bókhaldari í Reykjavík, f. 3. júlí 1868, d. 20. jan. 1942, og k.h. Jensína Björg Matthíasdóttir, húsfreyja, f. 1. okt. 1864, d. 25. okt. 1928. Móðir: Kristín Jónsdóttir Ásgeirsson, húsfreyja í East Orange í New Jersey, Boston, Wakefield og Bedford í Massachusetts í Bandaríkjunum, f. 28. ágúst 1901. For.: Jón Antonsson, verkstjóri og skipstjóri í Reykjavík, síðar (frá um 1904) olíuflutningamaður og skipstjóri í New York og Wakefield í Massachusetts, f. 28. ágúst 1879, d. 19. ágúst 1977, og k.h. (skildu) Kristín Ingvarsdóttir, húsfreyja, síðar í Vestmannaeyjum og í Reykjavík, f. 27. júlí 1881, d. 22. ágúst 1952. (Sambýlismaður Kristínar í Vestmannaeyjum var Haraldur Sigurðsson, trésmiður, f. 18. okt. 1876, d. 18. sept. 1943. Þau slitu sambúð.) Nám: Stúdent frá Greater Boston Academy í Boston 1955. B.A. frá Atlantic Union College í South Lancaster í Massachusetts 1959. D.D.S. frá Loma Linda University í Kaliforníu 1964. Tannlækningaleyfi í Massachusetts og í Kaliforníu. Störf: Sjálfstætt starfandi tannlæknir í Massachusetts 1964-72. Tannlæknir hjá Seventh Day Adventist Church í Bulawayo í Zimbabwe 1972-75. Hefur rekið eigin tannlækningastofu í Newburyport í Massachusetts frá 1976. Félags- og trúnaðarstörf: Í framkvæmdastjórn Alumni Association of Loma Linda University, School of Dentistry. Formaður National Association of Seventh Day Adventist Dentists til 1990. Meðlimur American Dental Association, Massachusetts Dental Society og North Shore Dental Society. Maki: 8. febr. 1959, Ruth Edna Ásgeirsson, f. Golsner, f. 28. jan. 1937, hjúkrunarfræðingur og húsfreyja. For.: John Golsner, búsettur í Patchogue á Long Island í New Yorkríki, f. 8. jan. 1888, d. í apríl 1967, og k.h. Florence Beatrice Golsner, f. Swigart, húsfreyja, síðar í Amesbury í Massachusetts, f. 30. maí 1903, d. í júlí 1985. Börn þeirra: 1) Laura Lynne, f. 27. des. 1959, B.S., sjúkraþjálfari í Winchenden í Massachusetts. Maki: Keith Collins, B.S., sjúkraþjálfari. 2) Leifur Árni, f. 7. júlí 1966, A.D. frá Northern Essex Community College, nemi við Middle Tennessee State College. 3) Eiríkur Gunnar, f. 7. júlí 1966, A.D. frá Northern Essex Community College, starfar hjá rafiðnaðarfyrirtæki. Skyldleiki/tengdir: Gunnar Þormar (þremenningur).
|