Evamarie Bauer
Evamarie Ilse (Elsa) Bauer f. 2. nóv. 1938 í Eppendorf/Sachsen í Þýskalandi. Faðir: Aurel Bauer, dr. med., læknir í Eppendorf/Sachsen í Þýskalandi, f. 19. okt. 1907, d. 2. mars 1989. For.: Maximilian Bauer, prestur í Breitenau/Sachsen, og k.h. Arabella Bauer, f. Göldner, húsfreyja. Móðir: Ilse Bauer, f. Lehmann, hjúkrunarfræðingur í Eppendorf/Sachsen í Þýskalandi, f. 25. mars 1912, d. 30. ágúst 1975. For.: Ernst Lehmann, verkfræðingur í Kassel í Þýskalandi, og k.h. Emilia Lehmann, f. Bach, húsfreyja. Nám: Stúdent frá Geschwister/Scholl Schule í Freiberg/Sachsen 1956. Cand. odont. frá Freie Universität í Berlín 1965. Tannlækningaleyfi 4. apríl 1979. Störf: Skólatannlæknir í Reykjavík 1965-83. Aðstoðartannlæknir hjá Ólafi G. Karlssyni í Reykjavík frá sept. 1979 til maí 1983. Rak eigin tannlækningastofu í Hveragerði frá júní 1983 til des. 1988 og í Reykjavík frá ágúst 1989 ásamt skólatannlækningum. Maki: 14. mars 1962, Þorleifur Júlíus Matthíasson, f. 7. ágúst 1931, stúdent frá M.A. 1955, cand. odont. frá Freie Univeristät 1962, tannlæknir. Þau skildu 18. apríl 1974, lögsk. 24. febr. 1976. For.: Matthías Oddsson, trésmiður og verkstjóri í Móhúsum í Garði, Gerðahr., Gullbr., f. 31. des. 1900, d. 30. des. 1988, og k.h. Guðrún Þorleifsdóttir, húsfreyja, f. 26. maí 1908. Synir þeirra: 1) Matthías Aurel, f. 27. nóv. 1961, sjávarútvegsfræðingur. Maki: Hólmfríður Amalía Gísladóttir, f. 10. nóv. 1964, hjúkrunarfræðingur. 2) Björn, f. 2. feb. 1966, d. 13. júní 1966. 3) Björn Gunnar, f. 20. febr. 1967, hótelfræðingur og hótelstarfsmaður í Sviss. 4) Andri, f. 30. nóv. 1968, sjávarútvegsfræðingur á Skagaströnd. Skyldleiki/tengdir: Þorleifur Matthíasson (fv. maki). |
Mynd








