Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Jens Ernst Busk

Jens Ernst Eyjólfsson Busk f. 24. nóv. 1965 í Reykjavík.
Faðir: Eyjólfur Þór Busk, tannlæknir í Reykjavík og síðar í Twistringen í Þýskalandi, f. 6. ágúst 1937. For.: Henning Busk, mjólkurfræðingur, verkstjóri hjá Hraðfrystistöðinni í Reykjavík, búsettur á Seltjarnarnesi, f. 1. maí 1908, d. 28. mars 1985, og k.h. Anna Eyjólfsdóttir Busk, verslunarmaður og húsfreyja, f. 20. apríl 1905, d. 5. mars 1994.
Móðir: Ursula Maria Busk, f. Albrecht, bankastarfsmaður í Wiesbaden, húsfreyja í Reykjavík og síðar aðstoðarmaður tannlæknis í Twistringen í Þýskalandi, f. 1. ágúst 1940, d. 8. maí 1997. For.: Ernst Albrecht, bifvélavirki og eigandi leigubifreiðarstöðvar í Breslau í Þýskalandi, f. 31. des. 1907, d. í jan. 1946, og k.h. Hedwig Albrecht, f. Weiser, meinatæknir og húsfreyja, f. 15. maí 1907, d. 23. nóv. 1995.
Nám: Stúdent frá Gymnasium Antonianum Vechta 1984. Nám í tannsmíði í Sulingen 1984-86. Nám í tannlækningum við Universität Witten-Herdecke í Þýskalandi, cand. odont. þaðan 5. júní 1992. Tannlækningaleyfi í Þýskalandi 30. júní 1992.
Starf: Aðstoðartannlæknir hjá föður sínum, Eyjólfi Busk, í Twistringen í Þýskalandi frá sept. 1992.
Maki: 10. okt. 1992, Jutta Scheidl, f. 28. okt. 1968, stúdent frá Gymnasium St. Pölten 1987, cand. med. frá Universität Wien í Austurríki 1994, læknir. For.: Johann Franz Scheidl, verslunarmaður í Austurríki, f. 26. júní 1930, d. 20. des. 1985, og k.h. Margit Scheidl, f. Freidinger, hárskeri, f. 1. okt. 1939.
Sonur þeirra: Júlían Javas Ljós, f. 13. mars 1997.
Skyldleiki/tengdir: Eyjólfur Þór Busk (faðir).



Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar