Eyjólfur Sigurðsson
Eyjólfur Sigurðsson f. 9. júní 1968 á Ólafsfirði. Faðir: Sigurður Helgason, verkstjóri á Sauðárkróki, f. 3. júní 1941. For.: Helgi Gíslason, sjómaður á Ólafsfirði, f. 7. febr. 1913, og k.h. Sigríður Ingimundardóttir, húsfreyja og verkakona, f. 16. okt. 1913. Móðir: Ágústa Pétursdóttir, húsfreyja á Sauðárkróki, f. 3. febr. 1943. For.: Pétur Þorbjörnsson, togaraskipstjóri í Hafnarfirði, f. 25. okt. 1922, og k.h. Sigríður Eyjólfsdóttir, húsfreyja, f. 16. des. 1922, d. 15. okt. 1994. Nám: Stúdent frá M.A. 1988. Cand. odont. frá H.Í. 1994. Tannlækningaleyfi 30. ágúst 1994. Starf: Hefur rekið eigin tannlækningastofu á Sauðárkróki frá júlí 1994. Sambýliskona: 1994, Íris Helma Ómarsdóttir, f. 3. maí 1972, stúdent frá F.Sn. 1992, cand. oecon. frá H.Í. For.: Ómar Steindórsson, flugvirki í Keflavík, f. 20. mars 1942, og k.h. Guðlaug Jóhannsdóttir, hárgreiðslukona, f. 15. nóv. 1944. |
Mynd








