Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Thorsteinn Patursson

Thorsteinn Patursson f. 10. júlí 1938 í Rude í Danmörku.
Faðir: Sverrir Eiríkur Jóannesson Patursson, dýralæknir í Dalmose í Danmörku, f. 28. mars 1905, d. 18. des. 1988. For.: Jóannes Patursson, kóngsbóndi í Kirkjubæ í Færeyjum, f. 6. maí 1886, d. 2. ágúst 1946, og k.h. Guðný Eiríksdóttir (frá Karlsskála í Helgustaðahr., S-Múl.), húsfreyja, f. 18. maí 1872, d. 3. júní 1950.
Móðir: Anna Cathrine Aagot Sveinsdóttir Patursson, f. Björnsson, húsfreyja í Dalmose í Danmörku, f. 19. nóv. 1911, d. 21. sept. 1952. For.: Sveinn Björnsson, hæstaréttarlögmaður í Reykjavík, sendiherra í Kaupmannahöfn, ríkisstjóri og síðar forseti Íslands á Bessastöðum á Álftanesi, Gullbr., f. 27. febr. 1881, d. 25. jan. 1952, og k.h. Georgia Björnsson, f. Hansen, húsfreyja, f. 18. jan. 1884, d. 18. sept. 1957.
Nám: Stúdent frá Slagelse kommunale gymnasium 1957. Cand. odont. frá Tannlæknaskólanum í Kaupmannahöfn 1964. Tannlækningaleyfi 17. mars 1966.
Starf: Aðstoðartannlæknir í Lyngby 1964-67. Hefur rekið eigin tannlækningastofu í Skælskør á Sjálandi frá 1. júní 1967, í félagi við Isabel Tingsgaard, tannlækni, frá 1. febr. 1995.
Maki: 7. ágúst 1965, Eva Patursson, f. Molsted, f. 20. jan. 1945, kennari. For.: Knud Molsted, læknir í Korsør í Danmörku, f. 1912, og k.h. (skildu) Ellen Molsted, kennari í Korsør, f. 30. ágúst 1912, d. 28. jan. 1983.
Börn þeirra: 1) Guðný, f. 7. des. 1966, nemi í klínískri sálfræði. Maki: Per G. Olsen, f. 26. ágúst 1964, rafeindafræðingur og kennari, nemi í klínískri sálfræði. 2) Niklas, f. 19. maí 1969, stud. mag. í dönsku. 3) Anna Catharina, f. 25. mars 1974, stud. psych. 4) Tue, f. 13. jan. 1976, stud. scient.
Skyldleiki/tengdir: Ólafur J. Ólafson (tvím. við föður), Páll Jónsson (þremenningur), Páll J. Ólafson (tvím. við föður), Sveinn Sv. Björnsson (móðurbróðir), Sveinn J. Patursson (bróðir), Þorsteinn Scheving Thorsteinsson (T.P. tvím. við föður Þ.S.T.).



Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar