Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Jóhann Finnsson

Jóhann Finnsson f. 23. nóv. 1920 á Hvilft í Önundarfirði, V-Ís., d. 2. júní 1973.
Faðir: Finnur Finnsson, bóndi á Hvilft í Önundarfirði, V-Ís., f. 29. des. 1876, d. 14. ágúst 1956. For.: Finnur Magnússon, bóndi á Hvilft, f. 18. júní 1839, d. 25. des. 1886, og k.h. Sigríður Þórarinsdóttir, húsfreyja, f. 28. sept. 1836, d. 18. ágúst 1910.
Móðir: Guðlaug Jakobína Sveinsdóttir, húsfreyja á Hvilft í Önundarfirði, V-Ís., f. 28. febr. 1885, d. 21. febr. 1981. For.: Sveinn Rósinkranzson, bóndi og skipstjóri á Hvilft, f. 8. júlí 1850, d. 3. maí 1907, og k.h. Sigríður Sveinbjarnardóttir, húsfreyja, f. 1. okt. 1852, d. 8. júlí 1934.
Nám: Stúdent frá M.A. 1943. Lauk miðhlutaprófi í læknisfræði frá H.Í. 1947. Cand. odont. þaðan 1950. Tannlækningaleyfi 30. jan. 1950. Nám í tannréttingum við Eastman Dental Hospital í Lundúnum 1950-51. Framhaldsnám í tannvegssjúkdómum og barnatannlækningum við University of Alabama, Medical Center School of Dentistry, í Birmingham í Alabama í Bandaríkjunum, 1962-63. Lagði stund á sömu greinar við Tannlæknaháskólann í Árósum í Danmörku í fjóra mánuði 1964.
Störf: Tannlæknir á Akranesi jan.-maí 1950. Aðstoðartannlæknir hjá Engilbert Guðmundssyni í Reykjavík júní-sept. 1950. Kennari við læknadeild Háskóla Íslands frá hausti 1951 til æviloka (kennslugreinar: almenn klínísk kennsla, tannholdssjúkdómafræði og tannréttingar), skipaður dósent með kennsluskyldu í tannvegsfræðum og almennum tannlækningum frá 15. sept. 1959 og við tannlæknadeild frá stofnun deildarinnar 1. maí 1972. Rak jafnframt eigin tannlækningastofu í Reykjavík frá jan. 1952 til æviloka.
Félags- og trúnaðarstörf: Formaður stjórnar Stúdentafélags Háskóla Íslands 1947-48. Formaður stjórnar Félags íslenskra tannlæknanema 1949. Bókavörður TFÍ 1952-56 og 1960-62. Í taxtanefnd TFÍ 1952-60. Í ritnefnd Árbókar TFÍ 1954-55. Gjaldkeri í stjórn TFÍ 1956-62. Í skemmtinefnd TFÍ 1966-68.
Maki: 1. júlí 1949, Jónína Kristveig Björnsdóttir, f. 29. mars 1926, verslunarmaður. For.: Björn Gunnarsson, fulltrúi hjá Sambandi ísl. samvinnufélaga í Reykjavík, f. 2. maí 1903, d. 29. maí 1995, og k.h. Ólöf Guðrún Kristjánsdóttir, húsfreyja, f. 12. maí 1892, d. 17. júlí 1969.
Börn þeirra: 1) Björn, f. 7. ágúst 1950, bankafulltrúi í Reykjavík. Maki: Guðrún Rannveig Daníelsdóttir, f. 1. júní 1954, leikskólakennari. 2) Sigríður, f. 20. júní 1952, hjúkrunarfræðingur í Reykjavík. Maki: Baldvin Már Frederiksen, f. 22. maí 1952, húsamálari og iðnrekstrarfræðingur. 3) Sveinn, f. 16. jan. 1954, tollvörður í Reykjavík. Maki: Soffía Guðmundsdóttir, f. 25. apríl 1951, kennari. 4) Guðrún, f. 11. jan. 1957, kennari í Reykjavík.
Skyldleiki/tengdir: Halldór G. Halldórsson (móðir tvím. við maka J.F.), Ragnar Kr. Árnason (J.F. tvím. við föður R.K.Á.), Rolf Hansson (maki bróðurdóttur).



Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar