Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Friðgerður Samúelsdóttir

Friðgerður Guðrún Samúelsdóttir f. 26. febr. 1945 á Ísafirði.


Faðir: Samúel Jónsson, smjörlíkisgerðarmaður og forstjóri á Ísafirði, f. 7. jan. 1910, d. 11. apríl 1983. For.: Jón Bjarnason, bóndi og trésmiður á Tröð í Álftafirði og á Langeyri í Súðavíkurhr., N-Ís., síðar húsasmíðameistari á Vegamótum á Ísafirði, f. 2. jan. 1881, d. 3. júní 1929, og k.h. Daníela Jóna Samúelsdóttir, húsfreyja, f. 17. sept. 1888, d. 17. júní 1940.


Móðir: Ragnhildur Árney Helgadóttir, húsfreyja og kjólameistari á Ísafirði, f. 2. júní 1911, d. 26. des. 1987. For.: Helgi Kristján Jónsson, útvegsbóndi á Snæfjöllum í Snæfjallahr., og á Laugabóli í Ögurhr., N-Ís., síðast á Ísafirði, f. 18. ágúst 1872, d. 8. maí 1950, og k.h. Dagbjört Kolbeinsdóttir, húsfreyja, f. 23. júní 1878, d. 20. febr. 1959.


Nám: Stúdent frá M.A. 1965. Kennarapróf frá K.Í. 1968. Cand. odont. frá H.Í. 1984. Tannlækningaleyfi 27. febr. 1984.


Störf: Kennari við Austurbæjarskóla í Reykjavík 1968-69 og við Melaskóla í Reykjavík 1969-75. Skólatannlæknir hjá Reykjavíkurborg 1984-85. Hefur rekið eigin tannlækningastofu í Reykjavík frá jan. 1984.


Félags- og trúnaðarstörf: Í árshátíðar- og skemmtinefnd TFÍ 1985-89. Í stjórn Félags sjálfstætt starfandi tannlækna frá 1990.


Maki: 13. apríl 1975, Einar Ólafur Gíslason, f. 6. apríl 1929, flugstjóri. For.: Gísli Ólafsson, bakarameistari og kennari í Reykjavík, f. 21. nóv. 1898, d. 11. apríl 1991, og k.h. Kristín Einarsdóttir, húsfreyja, f. 26. sept. 1899, d. 12. des. 1992.


Synir þeirra: 1) Kolbeinn, f. 27. apríl 1971, tónskáld. 2) Einar, f. 9. júlí 1978.


Skyldleiki/tengdir: Guðmundur Hafliðason (tvímenningur).


 




Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar