Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Jón Benediktsson

Jón Benediktsson f. 25. apríl 1893 á Grenjaðarstað í Aðaldælahr., S-Þing., d. 24. júlí 1936 í Ögri í Ögurhr., N-Ís. (á ferðalagi).
Faðir: Benedikt Kristjánsson, prestur og prófastur á Skinnastað í Öxarfjarðarhr., N-Þing., á Helgastöðum í Reykdælahr. og á Grenjaðarstað í Aðaldælahr., S-Þing., síðast á Húsavík, f. 5. nóv. 1840, d. 26. jan. 1915. For.: Kristján Jónsson, bóndi á Snæringsstöðum í Svínadal og í Stóra-Dal í Svínavatnshr., A-Hún., f. um 1799, d. 28. maí 1866, og Sigurlaug Sæmundsdóttir, þá vinnukona á Snæringsstöðum, f. 29. maí 1810, d. 30. júlí 1901.
Móðir: Ólöf Ásta Þórarinsdóttir, húsfreyja á Grenjaðarstað í Aðaldælahr., S-Þing., f. 20. júní 1859, d. 23. ágúst 1929. (Ásta var seinni k. Benedikts.) For.: Þórarinn Magnússon, bóndi á Víkingavatni í Kelduneshr., N-Þing., f. 25. sept. 1831, d. 16. jan. 1900, og k.h. Valgerður Pálsdóttir, húsfreyja, f. 29. ágúst 1833, d. 20. ágúst 1919.
Nám: Stúdent í Reykjavík 1913. Nám í læknisfræði við Hafnarháskóla veturinn 1913-14, cand. phil. þaðan 29. maí 1914. Nám í læknisfræði við H.Í. 1914-21, cand. med. þaðan 14. febr. 1921. Nám (sótti læknakursus) við Tannlæknaskólann í Kaupmannahöfn 1924-25. Tannlækningaleyfi 1927.
Störf: Skipslæknir á varðskipinu Þór mars-maí 1921. Aðstoðarlæknir á Vífilsstöðum júní-júlí 1921. Staðgengill héraðslæknisins í Nauteyrarhéraði í N-Ísafjarðarsýslu frá ágúst 1921 til sept. 1922, settur héraðslæknir þar frá okt. 1922 til maí 1924. Skipaður héraðslæknir í Hofsóshéraði frá júní 1924 til ágúst 1925, en tók ekki við héraðinu fyrr en í febr. 1925. Læknir við Rigshospitalet í Kaupmannahöfn frá mars 1924 til jan. 1925 (stundaði jafnframt tannlæknanám). Tannlæknir á ýmsum stöðum á Austfjörðum og Norðurlandi frá febr. 1927 til maí 1930. Settist þá að í Reykjavík og stundaði tannlækningar þar til æviloka.
Ritstörf: Greinar í Læknablaðið 1925, 1930 og 1932.
Barnsmóðir: Kristín Friðrika Ólafsdóttir, f. 6. maí 1903, d. 4. jan. 1981, húsfreyja í Reykjavík. For.: Ólafur Ólafsson, bóndi í Skálavík í Reykjarfjarðarhr., N-Ís., f. 13. júní 1879, d. 30. okt. 1970, og Jóhanna Þorleifsdóttir frá Kleifarkoti í Nauteyrarhr., N-Ís., síðar húsfreyja í Bolungarvík, f. 11. júní 1880, d. 13. febr. 1949.
Sonur þeirra: Ólafur Ólafs, læknir í Reykjavík, f. 4. sept. 1924, d. 17. ágúst 1987. Maki: Drífa Garðarsdóttir, f. 14. nóv. 1931, húsfreyja.
Maki: 13. jan. 1930, Ellen Benediktsson, f. Jensen, f. 3. ágúst 1905, stúdent frá Rønne Statsskole 1923, cand. odont. frá Hafnarháskóla 1927, dr. med. dent. frá Universität Bonn 1938, tannlæknir. For.: Gregerz Michael Jensen, vegaeftirlitsmaður í Rønne á Borgundarhólmi, d. 1927, og k.h. Petra Marie Jensen, f. Nielsen, húsfreyja, d. 1950.
Synir þeirra: 1) Gunnar Gregerz Jonsson, f. 5. febr. 1931, verkfræðingur í Kaupmannahöfn. Maki: Marit Andersen, húsfreyja. 2) Ivar Gregerz Jonsson, f. 21. okt. 1932, verkfræðingur í Kaupmannahöfn. Maki: Elin Wichmann Olsen, húsfreyja.
Skyldleiki/tengdir: Ásta Björt Thoroddsen (systurdótturdóttir), Ellen Benediktsson (maki).



Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar