Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Friðleifur Stefánsson

Friðleifur Kristinn Stefánsson f. 23. júlí 1933 á Siglufirði.


Faðir: Stefán Jón Friðleifsson, verkamaður á Siglufirði, f. 26. febr. 1905, d. 22. sept. 1965. For.: Friðleifur Jóhannsson, útgerðarmaður á Dalvík og síðar á Siglufirði, f. 15. ágúst 1873, d. 1. júlí 1967, og k.h. Sigríður Stefánsdóttir, húsfreyja, f. 27. apríl 1873, d. 15. ágúst 1954.


Móðir: Sigurbjörg Hjálmarsdóttir, húsfreyja á Siglufirði, f. 8. maí 1912, d. 1. jan. 1981. For.: Hjálmar Kristjánsson, bóndi á Húsabakka í Aðaldælahr., S-Þing., í Engidal í Siglufirði og síðar verkamaður á Siglufirði, f. 26. júní 1877, d. 14. febr. 1959, og k.h. Kristín Kristrún Snorradóttir, húsfreyja, f. 18. júlí 1877, d. 23. júní 1958.


Nám: Stúdent frá M.A. 1954. Nám í læknisfræði við H.Í. 1954-55. Nám í tannlækningum við Universität München 1955-62 og lauk þaðan fyrrihlutaprófi 1959. Cand. odont. frá Freie Universität í Berlín 1962. Tannlækningaleyfi 19. des. 1962.


Störf: Aðstoðarmaður hjá Halli L. Hallssyni í Reykjavík frá júní 1962 til okt. 1963. Hefur rekið eigin tannlækningastofu í Reykjavík frá okt. 1963. Vann á tannlækningastofu í Osló frá okt. 1969 til okt. 1970.


Félags- og trúnaðarstörf: Starfaði mikið fyrir íþróttahreyfinguna, var m.a. í stjórn Badmintonsambands Íslands 1973-79 og formaður badmintondeildar K.R. 1973-77.


Viðurkenningar: Hlaut gullmerki Íþróttasambands Íslands 1983 og gullmerki K.R. 1994.


Maki I: 27. sept. 1958, Lilja Gunnarsdóttir, f. 21. febr. 1936, húsfreyja, síðar á Egilsstöðum. Þau skildu 4. júlí 1963, lögsk. 2. sept. 1964. For.: Eiríkur Gunnar Sigurðsson, sjómaður á Seyðisfirði, síðar í Hafnarfirði, f. 18. apríl 1907, d. 12. mars 1987, og k.h. (skildu) Kristlaug Þorvaldsdóttir, húsfreyja, síðar á Siglufirði, f. 24. okt. 1910, d. 30. jan. 1977.


Börn þeirra: 1) Hildur Kristín, f. 22. nóv. 1956, stúdent frá M.A., cand. juris frá H.Í., lögfræðingur. Maki: Þorbjörn Jónsson, f. 4. júní 1961, stúdent frá M.R., próf í iðnrekstrarfræði frá H.A., M.B.A. og M.Sc. í rekstrarhagfræði frá Ecole Européenne des Affaires í París, sendiráðsritari í sendiráði Íslands í París. 2) Stefán, f. 5. júní 1958, flugmaður hjá Atlanda hf., búsettur á Akureyri. Maki: Guðfinna Þóra Hallgrímsdóttir, f. 7. febr. 1966, stúdent frá M.A., hjúkrunarfræðingur.


Maki II: 1. des. 1964, Björg Juhlin Árnadóttir, f. 23. júní 1939, B.A., B.Ed., kennari. Þau skildu 7. des. 1989, lögsk. 20. febr. 1991. For.: Arne Juhlin, verktaki í Osló í Noregi, f. 7. mars 1911, d. 1. okt. 1982, og k.h. Inger Marie Juhlin, f. Ottersen, húsfreyja, f. 16. maí 1914, d. 10. mars 1980.


Börn þeirra: 1) Björg Siv Juhlin, f. 10. ágúst 1962, stúdent frá M.R., B.Sc. í sjúkraþjálfun frá H.Í., sjúkraþjálfari og alþingismaður á Seltjarnarnesi. Sambýlismaður: Þorsteinn Húnbogason, f. 24. sept. 1960, stúdent frá Fr.Sam., cand. oecon. frá H.Í., viðskiptafræðingur hjá Lífeyrissjóði rafiðnaðarmanna. 2) Ingunn Mai, f. 31. maí 1964, stúdent frá M.R., cand. odont. frá Oslóarháskóla, tannlæknir í Reykjavík. Maki: Sigurgeir Ómar Sigmundsson, f. 27. nóv. 1967, stúdent frá M.R., rannsóknarlögreglumaður hjá Ríkislögreglustjóranum. 3) Árni, f. 25. maí 1968, lögreglumaður í Reykjavík. Sambýliskona: Harpa Víðisdóttir, f. 29. júní 1970, stúdent frá Kv.R., B.Sc. hjúkrunarfræðingur. 4) Friðleifur Kristinn, f. 30. mars 1970, stúdent frá F.Á., B.Sc. líffræðingur hjá Íslenskum sjávarafurðum hf. í Reykjavík. Maki: Ólafía Gunnarsdóttir Kvaran, f. 6. ágúst 1970, stúdent frá Kv.R., B.Sc. hjúkrunarfræðingur.


Skyldleiki/tengdir: Ingunn Mai Friðleifsdóttir (dóttir).


 




Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar