Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Jón Sigtryggsson

Jón Sigtryggsson f. 10. apríl 1908 á Akureyri, d. 11. febr. 1992 í Reykjavík.
Faðir: Sigtryggur Benediktsson, bóndi á Tjörnum og Möðruvöllum í Saurbæjarhr., Eyjaf., síðar veitingamaður á Hjalteyri í Arnarneshr., Eyjaf., og á Akureyri, f. 30. des. 1866, d. 6. febr. 1954. For.: Benedikt Jóhannesson, bóndi og hreppstjóri í Hvassafelli í Saurbæjarhr., Eyjaf., f. 7. júlí 1828, d. 24. okt. 1886, og k.h. Sigríður Guðrún Tómasdóttir, húsfreyja, f. 7. ágúst 1838, d. 12. júlí 1899.
Móðir: Margrét Jónsdóttir, húsfreyja á Tjörnum og Möðruvöllum í Saurbæjarhr., Eyjaf., síðar veitingamaður á Hjalteyri í Arnarneshr., Eyjaf., og á Akureyri, f. 16. júní 1877, d. 31. maí 1965. For.: Jón Kristján Antonsson, útvegsbóndi á Arnarnesi í Arnarneshr., Eyjaf., f. 13. júní 1845, d. 19. jan. 1930, og k.h. Guðlaug Helga Sveinsdóttir, húsfreyja, f. 4. okt. 1852, d. 14. okt. 1930.
Nám: Stúdent frá M.A. 1931. Cand. med. frá H.Í. 1937. Cand. odont. frá Tannlæknaskólanum í Kaupmannahöfn í des. 1939. Almennt lækningaleyfi 9. maí 1941. Tannlækningaleyfi 19. maí 1941.
Störf: Aðstoðarlæknir við Sjúkrahúsið á Siglufirði júlí-sept. 1937. Námskandídat við Viborg Amts og Bys Sygehus frá nóv. 1937 til ágúst 1938 og á fæðingardeild Rigshospitalet í Kaupmannahöfn júlí-ágúst 1939. Aðstoðartannlæknir í Kaupmannahöfn jan.-ágúst 1940. Starfandi tannlæknir í Reykjavík frá mars 1941 til 1975. Skipaður dósent í tannlækningum við læknadeild Háskóla Íslands 1. ágúst 1944 frá 1. jan. 1945 til 1950 (fyrsti kennari í tannlækningum við Háskóla Íslands), skipaður prófessor í tannlækningum þar frá 1. jan. 1951 og við tannlæknadeild frá stofnun hennar 1. maí 1972 til 1. jan. 1979, er hann lét af störf um fyrir aldurs sakir.
Félags- og trúnaðarstörf: Í nefnd "sem kæmi betra skipulagi á greiðslur" 1945-46. Í ritnefnd Árbókar TFÍ 1945-52. Í nefnd til að fjalla um starfsréttindi tannsmiða 1946-47. Ritari í stjórn TFÍ 1947-51. Í lyfjanefnd TFÍ 1952-73. Í gerðardómi TFÍ 1957-59. Fulltrúi H.Í. í skólanefnd Tannsmíðaskóla TFÍ 1965-68. Í kúrsusnefnd TFÍ 1968-69. Kjörinn fyrsti deildarforseti tannlæknadeildar Háskóla Íslands 1972.
Ritstörf: Um tannsjúkdóma og tannlækningar, Vísindin efla alla dáð. Afmæliskveðja til Háskóla Íslands, 1961; Flúor. Greinargerð fyrir landlækni (ásamt Ólafi Höskuldssyni), 1975. - Greinar í Læknablaðinu 1961, í Læknanemanum 1957 og 1958 og í Árbók TFÍ 1960.
Viðurkenningar: Heiðursfélagi TFÍ 1977. Heiðursdoktor við tannlæknadeild Háskóla Íslands 1987. - Heiðursmerki: R.ÍF. fyrir tannlæknastörf.
Maki: 22. júní 1937, Jórunn Tynes, f. 28. febr. 1913, d. 23. mars 1978, húsfreyja. For.: Ole Olsen Tynes, útgerðarmaður á Siglufirði, f. 7. febr. 1877, d. 13. des. 1944, og k.h. Indíana Pétursdóttir Tynes, húsfreyja, f. 26. des. 1883, d. 3. júlí 1942.
Börn þeirra: 1) Jón Örn, f. 30. mars 1938, hagfræðingur, deildarstjóri í umhverfis- og menningarmálaráðuneyti Saskatchewanfylkis í Saskatchewan í Kanada. Maki: Guðrún Sigurlína Mjöll Guðbergsdóttur, f. 22. nóv. 1943, húsfreyja. 2) Ingvi Hrafn, f. 27. júlí 1942, blaðamaður í Reykjavík. Maki I: Hrefna Ágústa Harðardóttir, f. 31. jan. 1945, nú búsett í Bandaríkjunum. Þau skildu. Maki II: Ragnheiður Sara Hafsteinsdóttir, f. 29. mars 1951, flugfreyja. 3) Óli Tynes, f. 23. des. 1944, fréttamaður á Stöð 2 í Reykjavík. Maki I: Sigurdís Eggertsdóttir Laxdal, f. 31. jan. 1946, húsfreyja, nú búsett í Kópavogi. Þau skildu. Maki II: Vilborg Halldórsdóttir, f. 25. sept. 1937, skrifstofumaður. 4) Sigtryggur, f. 14. júní 1947, skrifstofustjóri hjá Ellingsen í Reykjavík. Maki: Þórhildur Þorleifsdóttir, f. 29. jan. 1948, húsfreyja. Þau skildu. 5) Margrét, f. 27. des. 1955, skrifstofumaður hjá Securitas hf. í Reykjavík. Maki: Ottó Guðmundsson, f. 15. apríl 1955, framkvæmdastjóri á Seltjarnarnesi. Þau skildu.



Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar