Auður G. Eyjólfsdóttir
Auður Guðrún Eyjólfsdóttir f. 20. mars 1962 í Reykjavík. Faðir: Eyjólfur Halldórsson, stýrimaður í Reykjavík, f. 27. mars 1927, d. 28. jan 200. For.: Halldór Guðbrandsson, bóndi í Haga í Holtahr., Rang., f. 20. febr. 1885, d. 8. mars 1950, og k.h. Jósabet Katrín Guðmundsdóttir, húsfreyja, síðar í Reykjavík, f. 22. júní 1895, d. 2. apríl 1982. Móðir: Karen Lísa Guðmundsdóttir, húsfreyja og bankastarfsmaður í Reykjavík, f. 7. apríl 1934. For.: Guðmundur Gunnar Sigurðsson, sjómaður á Ísafirði, f. 10. júní 1904, d. 26. febr. 1936, og k.h. Auður Arnfinnsdóttir, húsfreyja, síðar í Reykjavík, f. 23. des. 1905, d. okt. 2000. Nám: Stúdent frá M.R. 1982. Cand. odont. frá Oslo Tannlegehøyskole 1988. Tannlækningaleyfi 3. apríl 1989. Störf: Tannlæknir á Hvammstanga frá ágúst 1988 til nóv. 1992. Hefur rekið eigin tannlækningastofu í Reykjavík frá nóv. 1992. Félags- og trúnaðarstörf: Í árshátíðar- og skemmtinefnd TFÍ frá 1995. Maki: 2. jan. 1993, Hlynur Jónsson Arndal, f. 20. jan. 1957, stúdent frá Flensborg 1988, cand. oecon. frá H.Í. 1982, M.B.A. í rekstrarhagfræði frá Manchester Business School, Manchester University, 1988, sérfræðingur hjá VBS Fjárfestingarbanka h.f. For.: Jón Finnbogason Arndal, fv. svæðisstjóri hjá Vátryggingafélagi Íslands í Hafnarfirði, f. 17. maí 1930, d. 30. jan. 1999 og k.h. Margrét Jóhannsdóttir, húsfreyja, f. 23. maí 1927. Dætur þeirra: 1) Karen Lísa Arndal, f. 5. nóv. 1993. 2) Jóna Margrét, f. 21. des. 1999. Skyldleiki/tengdir: Hólmfríður Th. Brynjólfsdóttir, Magnús J. Kristinsson og Ólöf Helga Brekkan (tvím. við föður), Þórarinn Sigurðsson (tvím. við móður). |
Mynd








