Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Garðar Gíslason

Garðar Gíslason f. 14. apríl 1942 í Reykjavík.


Faðir: Gísli Kristján Guðmundsson, skipasmiður í Reykjavík, f. 29. jan. 1915, d. 20. ágúst 1971. For.: Guðmundur Gíslason, bóndi á Glæsistöðum í V-Landeyjahr., Rang., f. 16. nóv. 1867, d. 13. des. 1942, og k.h. Sigríður Bjarnadóttir, húsfreyja, f. 28. apríl 1876, d. 3. okt. 1916.


Móðir: Þórunn Waage Guðjónsdóttir, húsfreyja í Reykjavík, f. 2. febr. 1918. For.: Guðjón Guðmundsson, sjómaður í Reykjavík, f. 2. júlí 1871, d. 12. maí 1957, og k.h. Elísabet Pétursdóttir, húsfreyja, f. 30. mars 1874, d. 9. apríl 1941.


Nám: Stúdent frá M.A. 1961. Cand. odont. frá H.Í. í júní 1968. Tannlækningaleyfi 11. júlí 1968. Framhaldsnám í tannvegslækningum við University of Washington í Seattle í Bandaríkjunum 1984-86. Sérfræðingsleyfi í tannvegslækningum 24. ágúst 1993.


Störf: Tannlæknir í Stykkishólmi frá júní 1968 til des. 1969. Tannlæknir í Reykjavík frá jan. 1970 og jafnframt skólatannlæknir þar frá jan. 1970 til jan. 1976.


Félags- og trúnaðarstörf: Hefur um árabil stundað svifflug og er handhafi nokkurra innanlandsmeta og Íslandsmeta í þeirri grein.


Maki  Elísabet J Sveinbjörnsdóttir f. 20.12.1946, leikskólakennari.


Dóttir af fyrra hjónabandi: Bergþóra Kristín, f. 1. ágúst 1964, kennari og flugfreyja í Reykjavík. Maki: Ólafur Gylfi Gylfason, f. 27. sept. 1958, flugmaður.




Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar